Kynna nýja útgáfu hins vinsæla Qashqai

Nýr Nissan Qashqai.
Nýr Nissan Qashqai. Ljósmynd/BL

Þriðja kynslóð eins vinsælasta sportjepplings allra tíma, Nissan Qashqai, er nú til sýnist í sýningarsal BL við Sævarhöfða og verður hann kynntur formlega á laugardaginn milli kl. 12 og 16.

Þetta segir í tilkynningu frá BL.

Eins og áður er Qashqai í boði með annað hvort framjóladrifi eða fjórhjóladrifi, en þar líkur má segja samanburðinum við fræáfarandi kynslóð enda hefur bíllinn tekið talsverðum breytingum frá fyrri kynslóð. Það á við hvort heldur sem er við útlit bílsins, farþegarými eða tæknibúnað eins og glögglega má sjá við skoðun og upplifun í akstri.

Nútímalegt útlit einkennir innréttingu bílsins að framan og hún er …
Nútímalegt útlit einkennir innréttingu bílsins að framan og hún er ekki síðri í aftursætum. Ljósmynd/BL

Stærri bíll

Augljósasta útlitsbreytingin er að framanverðu þar sem nýja V-Motion grillið og C-laga díóðuljósin kallast á og hrópa beinlínis á athygli. Þá er nýr Qashqai auk þess léttari en forverinn enda hurðar, frambretti og vélarhlíf úr áli í stað stáls.

Qashqai er einnig á nýjum og lengri undirvagni en áður auk þess sem lengra er á milli fram- og afturhjóla til að auka fótarými og þægindi farþega í aftursætum bílsins. Þá er bíllinn líka breiðari og yfirbyggingin hærri en áður. Þessar breytingar fela fyrst og fremst í sér aukin þægindi og meira rými fyrir farþega og farangur. Nissan gerði meðal annars skoðanakönnun, eins og segir í áðurnefndri tilkynningu, og spurði Qashqa-eigendur hvaða breytingar þeir vildi sjá við hönnun nýrrar kynslóðar. Svarið: Aukin þægindi og meira pláss.

Og ekki stóð á viðbrögðum framleiðandans, því nú er Qashqai í fyrsta sinn boðinn með nuddi í framsætum, rafknúnum afturhlera með snertilausri opnun auk þess sem farangurrsrýmið er 50 lítrum stærra en í fráfarandi gerð. Einnig má nefna að afturhurðir opnast nú alveg upp á gátt (90°) til þægindarauka fyrir farþega til að setjast inn og stíga út úr bílnum.

Þá hefur farþegarýmið verið endurhannað með nýjum efnum, nýjum og vandaðri sætum og nýju mælaborði. Ofan við mælaborðið er val um 11“ framrúðuskjá með völdum upplýsingum. Við miðjustokkinn er nýr 9“ upplýsinga- og afþreyingarskjár með afar notendavænu viðmóti og samhæfingu við Andoid Auto og Apple CarPlay auk þess sem Google Street View er í boði og app í símann til að breyta stillingum bílsins úr fjarlægð.

Eigendur Qasqai vildu meira pláss og þeir fengu meira pláss.
Eigendur Qasqai vildu meira pláss og þeir fengu meira pláss. Ljósmynd/BL

Vélbúnaður

Hjá BL verður bíllinn boðinn með 156 hestafla 1,3 l DiG-T bensínvél með forþjöppu sem boðin er í tveimur útfærslum, annars vegar við sex gíra beinskiptingu og hins vegar 7 gíra Xtronic sjálfskiptingu og fjórhjóladrif. Báðar vélarútfærslur eru með mildri tvinntækni sem eykur eldsneytisnýtingu, snerpu úr kyrrstöðu og aðstoð upp brekkur til að lágmarka eyðslu og draga úr losun CO2 um 4g á ekinn km. Þessi vél var fyrst kynnt 2018 en hefur nú verið þróuð áfram með nýjum tæknilausnum til enn bættra afkasta og skilvirkni.

Fjórar gerðir Qashqai

BL býður nýjan Nissan Qashqai í fjórum mismunandi búnaðarútfærslum; ríkulega búnu grunnútgáfunni Acenta, sem kostar frá 4.690.000, N-Connecta sem kostar frá 5.590.000, Tekna sem kostar frá 5.990.000 og loks Tekna+ sem kostar frá 6.290.000 og er hægt að kynna sér nánar mismunandi búnaðarútrfærslur á BL.is.

Sem dæmi um öryggisstaðalbúnað Acenta sem ekki eru í fráfarandi gerð, má nefna sjálfvirka neyðarhemlun, sem skynjar bíla, gangandi vegfarendur og hjól, vegaskiltisnema, akreinavara og -stýringu, neyðarbremsuaðstoð, aðvörun á hliðarumferð, blindhornaviðvörun, skynvæddan hraðastilli, sjálfvirka skiptingu milli háa og lága ljósageislans og bakkskynjara með árekstrarvara.

Meira en tíu þúsund eintök af nýjum Qashqai hafa nú þegar verið pantaðar í Evrópu frá því í febrúar þegar sala hófst, en alls hafa um fimm milljónir Qashqai verið afhentar frá 2007 þegar sala 1. kynslóðar hófst, þar af þrjár milljónir í Evrópu. Á Íslandi hafa á fjórða þúsund Qashqai verið nýskráðir frá 2007.

mbl.is