Smart kynnir nýjan bíl og hefur samstarf á Íslandi

Nýr Smart Concept #1.
Nýr Smart Concept #1. Ljósmynd/Bílaumboðið Askja

Á IAA Mobility 2021 bílasýningunni í Munich, frumsýndi bílaframleiðandinn Smart hinn nýja Concept #1 rafbíl. Hann telst til svokallaðra borgarjepplinga og er fjórhjóladrifinn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bílaumboðinu Öskju, sem hefur hafið samstarf við Smart.

Smart Concept #1 er hannaður af Mercedes-Benz og framleiddur í nýrri verksmiðju Smart í Kína. Concept #1 hefur vakið mikla athygli á sýningunni og var samningur Öskju og Smart undirritaður á fyrsta degi sýningarinnar sem stendur yfir til 12. september. Bifreiðin sem kynnt var í Munich er nálægt endanlegri framleiðsluútfærslu þó svo að um hugmyndabíl sé að ræða (e. concept car). 

Margir kannast við vörumerkið Smart en fyrstu smart bílarnir komu á markaðinn í Evrópu árið 1997. Nafnið Smart varð til í samstarfi úraframleiðandans SWATCH og Mercedes-Benz og stendur fyrir Swatch Mercedes ART. 

Ljósmynd/Bílaumboðið Askja

Blanda af þýsku og kínversku hugviti

Í lok árs 2019 var það tilkynnt að Mercedes-Benz og Geely, einn stærsti bílaframleiðandi Kína, myndu hefja samstarf í þróun og framleiðslu Smart. Félögin eiga sitthvora 50% hlutdeildina í fyrirtækinu og markmiðið er að ná fram því besta frá hvoru þeirra. Þannig leggur Mercedes-Benz til hönnun að innan og utan en Geely leggur til framleiðsluþekkingu og verksmiðjur. 

„Við hjá Öskju höfum unnið að þessu í þó nokkurn tíma og núna á þessum tímapunkti þegar samstarf Mercedes-Benz og Geely er að hefjast lá það fyrir að þetta væri rétti tíminn. Smart var fyrsti framleiðandi heims sem hættir alfarið framleiðslu hefðbundinna jarðefnaeldsneytisbíla og skipti alfarið yfir í rafbíla.

Við munum frá árinu 2023 sjá nokkra nýja Smart bíla koma á markaðinn og þeir eru stærri en við höfum áður séð. Okkur finnst því Smart vera fullkomin vara fyrir Ísland. Rafknúinn bílaframleiðandi í hæsta gæðaflokki, sem býður upp á fjórhjóladrifinn borgarjeppling á góðu verði og með drægni sem telst til fyrirmyndar í þessum stærðarflokki auk þess að tengjanleiki við snjalltæki verður eins og best verður á kosið," er haft eftir Jóni Trausta Ólafssyni, framkvæmdastjóra Öskju. 

Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju.
Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju. mbl.is/Golli

Forstjóri Smart í Evrópu, Dirk Adelmann, skrifaði undir samkomulagið fyrir hönd fyrirtækisins. Við tilefnið var haft eftir honum:

„Askja hefur verið frábær samstarfsaðili Mercedes-Benz í 18 ár á Íslandi. Það lá því strax fyrir að tilnefna Öskju sem sölu- og þjónustuaðila á Íslandi. Við erum full tilhlökkunar að fá að kynna Smart fyrir Íslendingum og erum viss um að Ísland sem er meðal þeirra landa í Evrópu sem eru lengst komnir í rafbílavæðingunni mun taka okkur vel. Landið leggur mikla áherslu á sjálfbæra orkuframleiðslu og rafbílavæðing  mun flýta þeirri þróun enn frekar."

Ljósmynd/Bílaumboðið Askja
mbl.is