Kia EV6 bíll ársins í Þýskalandi

Kia EV6 er bíll ársins í úrvalsflokki í Þýskalandi.
Kia EV6 er bíll ársins í úrvalsflokki í Þýskalandi. Ljósmynd/Kia

Hinn nýi rafbíll Kia EV6 hefur verið valinn bíll ársins 2022 í Premium-flokki í Þýskalandi. Verðlaunin þykja ein þau eftirsóknarverðustu í bílaheiminum. Kia EV6 hafði betur í baráttu við Volkswagen ID4, Audi Q4 e-tron, Skoda Enyaq og Hyundai Ioniq 5 í Úrvalsflokknum.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá bílaumboðinu Öskju. 

Þá var Kia EV6 í 2. sæti í flokknum Nýir orkugjafar. Kia EV6 var frumsýndur í Evrópu á dögunum en rafbíllinn verður kynntur hér á landi 18-20. nóvember nk.

Kia EV6 er bíll ársins í úrvalsflokki í Þýskalandi.
Kia EV6 er bíll ársins í úrvalsflokki í Þýskalandi. Ljósmynd/Kia

Aflmikill og dregur langt

Kia EV6 rafbíll er með 528 km drægni samkvæmt WLTP staðli. EV6 er aflmikill rafbíll og hægt er að velja um 170 og 325 hestafla rafmótor. Hægt er að hlaða bílinn allt að 80% hleðslu á aðeins 18 mínútum og ná hleðslu sem dugar allt að 100 km á innan við fjórum og hálfri mínútu. EV6 er í boði bæði aftur- og fjórhjóladrifinn.

„Það er mikill heiður að Kia EV6 vinni þessi stóru verðlaun í bílaheiminum. Þetta er frábær viðurkenning fyrir þennan nýja og magnaða rafbíl sem beðið hefur verið eftir með mikilli eftrivæntingu. Við erum afar spennt að frumsýna EV6 hér í Öskju 18-20. nóvember og ég veit að það eru fjölmargir spenntir hér á landi að fá að sjá bílinn með eigin augum og prófa hann," er haft eftir Þorgeiri Pálssyni, sölustjóra Kia hjá Bílaumboðinu Öskju.

mbl.is

Bloggað um fréttina