Kia kitlar með myndum af framtíðarrafbíl

Kia EV9 verður kynntur bráðlega á bílasýningu í Bandaríkjunum.
Kia EV9 verður kynntur bráðlega á bílasýningu í Bandaríkjunum. Ljósmynd/Kia

Kia kynnti í dag fyrstu myndirnar af nýjum hugmyndabíl sem ber heitið Kia EV9. Um er að ræða hreinan rafbíl sem kemur í kjölfarið á frumsýningu á Kia EV6.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kia

Þar segir að Kia EV9 sé 100% rafknúinn sportjeppi og enn einn spennandi rafbíllinn úr smiðju suður-kóreska bílaframleiðandans sem er leiðandi í framleiðslu á rafbílum. Kia EV9 er væntanlegur á markað 2023.

Hönnunin á EV9 er framsækin og djörf. Línurnar eru sportlegar og gefa fögur fyrirheit um spennandi akstur. Innanrýmið er framúrstefnulegt en um leið fallega hannað og með vönduðu efnisvali. Sportjeppinn er mjög rúmgóður fyrir ökumann og farþega og er m.a. með sérstakt „Lounge" rými. Kia EV9 er mjög tæknivæddur bíll og mun bjóða upp á allt það nýjasta og besta frá framleiðandanum. Stýrið er til að mynda mjög framúrstefnulegt og tæknilegt.
 
Kia EV9 verður frumsýndur formlega á bílasýningunni í LA sem hefst í næstu viku og þá munu koma nánari upplýsingar um bílinn.

mbl.is