Kynna nýjan og endurbættan MG

Nýr MG ZS EV Luxury.
Nýr MG ZS EV Luxury. Ljósmynd/BL

BL við Sævarhöfða kynnir á laugardag, 4. desember milli kl. 12 og 16, uppfærðan og útlitsbreyttan MG ZS EV Luxury með 72 kWh rafhlöðu með uppgefinni 440 km drægni samkvæmt WLTP mælingum í blönduðum akstri. MG ZS EV er fimm manna fólksbíll sem slegið hefur í gegn í Evrópu vegna mikils staðalbúnaðar með tilliti til verðs, en hjá BL kostar MG ZS EV Luxury 5.490 þúsundir króna.

 Þetta kemur fram í tilkynningu frá BL.

Þar segir að meðal helstu útlitsbreytinga megi nefna nýtt grill, nýjar fimm arma álfelgur, fjölljósa díóðuljós (LED) í aðalljósum að framan og aftan auk þess sem hleðsluhöfnin hefur verið færð yfir á aftanvert vinstra frambretti, en var áður staðsett framan á bílnum. Þá er MG ZS EV Luxury einnig búinn tveimur hleðslukostum, annars vegar þriggja fasa 11 kW AC hleðslu og hins vegar 92 kW DC hraðhleðslu.

Nýr MG ZS EV Luxury.
Nýr MG ZS EV Luxury. Ljósmynd/BL

Meiri þægindi

Í farþegarými er komin aukin snjalltækni og má sem dæmi nefna að USB innstungum hefur verið fjölgað um þrjár. Farþegar hafa nú m.a. aðgang að þráðlausri símahleðslu, þremur A USB tengjum og tveimur C USB tengjum. Þá er komið mælaborð úr mjúkum koltrefjum með vönduðum saumi, rúmlega 10“ fljótandi snertiskjár og 7“ stafrænt mælaborð og stórt glerþak svo nokkuð sé nefnt.

Aukin drægni

Aðalbreytingin er þó sú að rafmótorinn í nýja bílnum er snarpari en í forveranum, rafhlaðan er stærri og langdrægari í Luxury þar sem farið er úr 263 km í 440 km drægni. Með tengingu við 92 kW hraðhleðslu má svo hlaða stærri rafhlöðuna í allt að 80% á aðeins 40 mínútum auk þess sem 11 kW þriggja fasa hleðslutenging er meðal staðalabúnaðar í MG ZS EV Luxury, sem hefur 500 kg dráttargetu.

Vinsæll í Evrópu

MG ZS EV var fyrst kynntur á meginlandi Evrópu síðla árs 2019 og hér á landi í júní á síðasta ári. Bílnum var strax vel tekið af áhugafólki um rafbíla eftir endurreisn merkisins undir hatti SAIC Motor, sem er sjöundi stærsti bílaframleiðandi heims. Alls hafa rúmlega fimmtán þúsund bílar verið seldir í álfunni sl. 24 mánuði og eru flestir í Bretlandi, Noregi, Svíþjóð, Hollandi og Frakklandi.

mbl.is