Toyota hendir handsprengju inn á rafbílamarkaðinn

Akio Toyoda, framkvæmdastjóri Toyota, stendur fyrir framan nýkynnta rafbíla Toyota …
Akio Toyoda, framkvæmdastjóri Toyota, stendur fyrir framan nýkynnta rafbíla Toyota og Lexus. Gjarnan er látið duga að kynna einn bíl í einu við álíka tilefni, en hér sjást 16 bílar sem allir eru væntanlegir. Ljósmynd/Toyota

Stórtíðindi bárust úr herbúðum Toyota í gær þegar haldinn var blaðamannafundur um framtíðaráform Toyota og Lexus hvað rafbíla varðar.

Helstu tíðindin eru þau að von er á 30 nýjum gerðum af rafmagnsbílum fyrir 2030 og það sem vakti sérstaka athygli er að nokkrir bílar sem eru væntanlegir eru í bZ línu Toyota voru sýndir í fyrsta sinn ásamt öðrum væntanlegum rafmagnsbílum.

Stefnt er að því að árið 2030 verði árleg sala fyrirtækisins á rafmagnsbílum komin í 3,5 milljónir bíla.

Nýrri bZ línu Toyota hefur verið beðið með mikilli eftirvæntinu og er hún sögð munu gjörbylta umhverfinu á rafbílamarkaði heimsins. 

mbl.is