Kia Niro valinn besti rafbíllinn

Kia Niro EV.
Kia Niro EV. Ljósmynd/Aðsend

Kia eigendur völdu Kia Niro besta bílinn annað árið í röð í áreiðanleikakönnun J.D. Power fyrir eigendur rafbíla.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Öskju.

Yfir átta þúsund bandarískir rafbílaeigendur tóku þátt í könnunninni. Kia Niro EV varð efstur yfir fjöldaframleidda bíla í þessum flokki og er þetta annað árið í röð sem bíllinn fær verðlaunin. Eigendur Kia Niro EV voru sérlega ánægðir með góða drægni bílsins á rafmagni, lágan viðhaldskostnað, sem og hönnun og aksturseiginleika bílsins.

Kia Niro hefur spilað stórt hlutverk í rafbílavæðingu Kia. Kia Niro EV hefur verið mest seldi rafbíll Kia síðan hann kom á markað árið 2017 og hefur drægni hans verið aukin jafnt og þétt á þeim tíma. Niro EV hefur verið vinsæll og fengið mikið lof fyrir áreiðanleika, góða drægni og aksturseiginleika.

mbl.is