Nýr EQS SUV sportjeppi

EQS SUV.
EQS SUV. Ljósmynd/Aðsend

Mercedes-EQ hefur kynnt til leiks rafknúinn EQS SUV-sportjeppa sem hefur allt að 660 km drægni.

Fram kemur í tilkynningu frá Öskju, að EQS SUV-sportjeppinn endurskilgreini lúxus með einstakri hönnun og innanrými fyrir allt að sjö manns.

„Líkt og EQS fólksbíllinn hefur hann sama langa hjólhafið sem  gerir aksturseiginleika hans einstaka og mikið innanrými. EQS SUV sportjeppinn hefur góða veghæð, búinn loftpúðafjöðrun sem skilar sér í framúrskarandi akstursgetu bæði á malbiki sem og í torfærum. 

EQS SUV sportjeppinn er hlaðinn lúxus og tækni í innanrýminu. Bíllinn er fáanlegur með hinum hátæknivædda Hyperscreen, líkt og  í EQS lúxusfólksbíllinn. Hyperscreen er háskerpuskjár sem teygir anga sýna yfir allt mælaborðið enda 55” með einu samfelldu bogadregnu gleri. Innréttingin er líka að mestu leyti sú sama og í EQS sem og afþreyingarpakkinn sem samanstendur m.a. af tveimur 11,6 tommu skjám fyrir farþega í aftursætum. EQS SUV verður búinn hinum þekkta 4MATIC fjórhjóladrifi og við það verður hægt að velja mismunandi aflútfærslur en sú aflmesta er EQS 580 4MATIC en hún er 545 hestöfl með 858 Nm tog sem skilar bílnum 0-100 á einungis 4,7 sekúndum,“ segir í tilkynningu frá félaginu. 
 
Þá segir, að EQS SUV verði fáanlegur með allt að 22kW, þriggja fasa hleðslugetu sem hlaði bílinn frá 0-100% á 5,5 klukkustund. Hraðhleðslugeta bílsins verði 200kW sem þýði að hægt verður að ná 300 km drægni á aðeins 15 mínútum og hlaða bílinn 10-80% á u.þ.b. 30 mínútum.

mbl.is