Bannað að auglýsa tilboð án þess að nefna fyrra verð

Tilgangur skoðunarinnar hafi verið að athuga hvort þar væru að …
Tilgangur skoðunarinnar hafi verið að athuga hvort þar væru að finna tilboðsauglýsingar á bifreiðum án þess að fram kæmi fyrra verð. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Neytendastofa hefur bannað Bílakaup ehf. og Netbílum ehf. að auglýsa tilboð á bifreiðum án tilgreinds fyrra verðs. Ákvarðanirnar voru teknar í lok apríl. 

Fram kemur á vef Neytendastofu að stofnunin hafi skoðað vefsíður bílasala með notaða bíla í júlí 2021. Tilgangur skoðunarinnar hafi verið að athuga hvort þar væru að finna tilboðsauglýsingar á bifreiðum án þess að fram kæmi fyrra verð.

Skoðaðar voru 72 vefsíður og kom í ljós að tilefni var til athugasemda við 53 þeirra.

Þá segir, að Neytendastofa hafi sent bílasölunum bréf þar sem vakin hafi verið athygli á skyldu til að kynna aðeins verðlækkun sem sé raunveruleg og að taka fram fyrra verð þegar tilboð sé kynnt.

Beðnir um að fara að lögum og reglum

Í bréfinu voru jafnframt sett fram tilmæli um að gæta þess að fara að þeim lögum og reglum er gilda um auglýsingar og tilboðsmerkingar.

Neytendastofa fylgdi skoðuninni eftir í lok janúar og enn voru tilboðsauglýsingar á vefsíðum 46 bílasala í ólagi. Í kjölfar athugasemda Neytendastofu voru gerðar viðeigandi úrbætur hjá 44 bílasölum, að því er stofnunin greinir frá. 

„Tvær bílasölur brugðust hins vegar ekki við erindum Neytendastofu og gerðu ekki úrbætur á vefsíðum sínum. Því hefur stofnunin nú tekið ákvörðun um að banna Bílakaup ehf. og Netbílum ehf. að auglýsa tilboð á bifreiðum án tilgreinds fyrra verðs,“ segir í tilkynningu Neytendastofu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina