Jón Jónsson í bílaþrifum

Jón Jónsson, Friðrik Dór og Páll Óskar. Allir eru þeir …
Jón Jónsson, Friðrik Dór og Páll Óskar. Allir eru þeir vanir tónlistarmenn.

Laugardaginn 14. maí verður árlegur Þjónustudagur Toyota. Allir Toyotaeigendur eru velkomnir milli kl. 11 og 15 á laugardag og verður vel tekið á mótið þeim af starfsmönnum Toyota sem sápuþvo bílana og þurrka. Þegar bíllinn hefur fengið sitt bíður grill og gos auk þess sem sumarglaðningur fylgir fyrir börn og fullorðna.

Sýningarsalir verða opnir og gestum býðst að sjá allt það nýjasta hjá Toyota og Lexus. Eurovisionstemmning verður alls ráðandi og eru Toyotaeigendur hvattir til að stilla á K100 og fá þjónustudaginn beint í æð. Páll Óskar verður með Pallaball í beinni á K100 kl. 11 - 13.

Í Kauptúni verða Friðrik Dór og Jón Jónsson og er þetta 10. árið í röð sem þeir taka þátt í Þjónustudegi Toyota. Einnig verður Leikhópurinn Lotta í Kauptúninu.

Þjónustudagur Toyota er hjá þessum þjónustuaðilum:

Toyota Kauptúni

Toyota Akureyri

Toyota Selfossi

Toyota Reykjanesbæ

Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur, Bæjarflöt

Nethamar, Vestmannaeyjum

Arctic Trucks, Kletthálsi

Bílageirinn, Reykjanesbæ

mbl.is