Kia EV6 valinn bíll ársins

Starfsmenn Kia hjá Öskju fagna verðlaununum við Kia EV6.
Starfsmenn Kia hjá Öskju fagna verðlaununum við Kia EV6. Ljósmynd/Aðsend

Bandalag íslenskra blaðamanna hefur valið Kia EV6 sem bíl ársins á Íslandi. Stálstýrið, eins og verðlaunin eru kölluð, hafa verið veitt nánast árlega frá árinu 2001.

Forsvarsmenn Öskju segja í tilkynningu, að þetta sé enn ein viðurkenningin sem EV6 hljóti, en hann „hefur raðað til sín verðlaunum víðsvegar um heiminn frá því að hann var frumsýndur í nóvember á síðasta ári og hefur notið gífurlegra vinsælda hér á landi.“ 

Þá segir Þorgeir Pálsson, sölusjóri Kia hjá Bílaumboðinu, að það sé mikill heiður að hljóta þessa viðurkenningu á heimamarkaði.

„„Það hefur verið ævintýri líkast að fylgjast með vinsældum EV6 út um allan heim. Við erum mjög stolt af þessum árangri og hlökkum til að halda áfram að færa Íslendingum framúrskarandi rafbíla á komandi misserum." 


mbl.is