Silfurþema á Mercedes-bílasýningu

Bílaumboðið Askja mun halda sérstaka EQ-sýningu milli kl. 12-16 á …
Bílaumboðið Askja mun halda sérstaka EQ-sýningu milli kl. 12-16 á laugardaginn. Ljósmynd/Askja

Á laugardag mun Bílaumboðið Askja halda sérstaka EQ-sýningu milli klukkan 12 og 16.

Þar verður rafmögnuð vörulína Mercedes-EQ til sýnis en sýningin er hluti af opnun á nýjum sýningarsal Mercedes-Benz sem hefur verið hannaður samkvæmt nýjustu stöðlum framleiðandans.

Bílarnir í sýningarsalnum verða allir í silfruðu litaþema sem tileinkað er Silver Arrow kappakstursbílnum. Saga litarins á rætur sínar að rekja allt til ársins 1934 sem er talið marka upphafið af vinsældum litarins í bílaframleiðslu.

mbl.is