BL afhenti fjögur þúsundasta rafbílinn

Aron Knútsson sölumaður afhenti Rui Luís Sequeira Gomes Silva á …
Aron Knútsson sölumaður afhenti Rui Luís Sequeira Gomes Silva á gamlársdag nýan Renault Megane E-Tech sem hefur allt að 470 km drægni.

Mikill vöxtur var í sölu BL á nýliðnu ári þegar nýskráðir voru 40,9% fleiri nýir fólks- og sendibílar borið saman við fyrra ár og var Hyundai þriðja mest selda fólksbílategundin á landinu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá BL. Þar kemur einnig fram að í árslok var fjögur þúsundasti rafbíllinn frá BL afhentur frá því að fyrirtækið hóf sölu þeirra 2013.

Af 18.214 fólks- og sendibílum sem nýskráðir voru á liðnu ári voru 4.583 af merkjum BL og var hlutdeild fyrirtækisins á markaðnum í heild rúm 25%. Sérstaklega var jólamánuðurinn annasamur þegar afhentir voru 426 nýir bílar, þar af 282 hreinir rafbílar.

Rúmlega 1.200 rafbílar nýskráðir

Alls voru 1.218 hreinir rafbílar frá BL nýskráðir 2022, sem er hæsta hlutdeild rafbíla í heildarsölu fyrirtækisins frá upphafi eftir því sem fram kemur í tilkynningunni, og voru MG og Hyundai vinsælustu merkin með alls 728 nýskráningar; 375 MG og 353 Hyundai. Nýjasta rafbílamerkið hjá BL, fjórhjóladrifni lúxusbíllinn Hongqi, sem frumsýndur var í október, hefur einnig fengið góðar móttökur en alls voru tólf slíkir bílar afhentir í desember; níu til einstaklinga eða fyrirtækja auk þess sem bílaleigurnar hafa tekið þrjá í notkun.

Bílaleigurnar tóku við sér á árinu

Í desember voru nýskráðir 359 bílaleigubílar, 47% fleiri en í sama mánuði 2022. Á árinu í heild voru 8.090 nýir bílar nýskráðir bílaleigunum, rúmlega 72% fleiri en 2021 þegar þeir voru 4.694. Þrír bílar frá BL enduðu þar á topp tíu lista ársins þar sem Dacia Duster stóð á toppnum með 675 nýskráningar. Aðrir bílar BL á vinsældalistanum voru Hyundai Tucson og Hyundai i20.

mbl.is