BL frumsýnir BMW iX1

BMW iX1 fer allt að 438 km á hleðslunni.
BMW iX1 fer allt að 438 km á hleðslunni.

BL við Sævarhöfða mun á morgun, laugardaginn 11. mars, frumsýna BMW iX1. Um er að ræða fjórhjóladrifinn og 100% rafknúinn borgarjeppling með allt að 438 km drægni á rafhlöðu en sýningin fer fram á milli kl. 12 og 16.

Í tilkynningu frá BL kemur fram að BMW iX1 sameini þrautreynda eiginleika systurbílsins BMW X1, þar sem koma saman ný hönnun og háþróuð tækni rafbíla frá BMW Group enda býr iX1 yfir þeim kostum sem ökumenn BMW þekkja þegar kemur að aksturseiginleikum, þægindum og notendavænni tækni.

„BMW iX1 er frábær og hagkvæmur ferðabíll enda fer hann allt að 438 km á hleðslunni og tekur það ekki nema um tíu mínútur að hlaða allt að 120 km drægni á rafhlöðuna og innan við 30 mínútur að hlaða í 80% á næstu hefðbundnu hraðhleðslustöð,“ segir í tilkynningunni.

BMW iX1 er hannaður á nýjum undirvagni til að hámarka rými farþega og farangurs. Innanrýmið er hlaðið nýjustu tækni og nútímalegum þægindum fyrir ökumann og farþega auk þess sem gott pláss er fyrir farangur sem hægt er að stækka á fljótlegan og þægilegan hátt með niðurfellingu sætisbaka. Stór, bogadreginn aðalskjár veitir góða yfirsýn á margvísleg stjórntæki, bæði með snertingu og raddstýringu og fyrsta flokks tengimöguleikar eru í boði fyrir ýmis snjalltæki og raftæki.

Fram kemur að iX1 sé sérlega hentugur við íslenskar aðstæður allan ársins hring, því sítengt fjórhjóladrifið og háþróaður öryggisbúnaður bregst við um leið og breyting verður á aðstæðum og stýrir aflinu á rétt hjól fyrir hámarks grip og stöðugleika. Hinn nýi rafknúni iX1 hefur þegar fengið afar jákvæðar umfjallanir hjá blaðamönnum TopGear og AutoExpress í Bretlandi sem telja m.a. að hér sé kominn góður valkostur fyrir fjölskyldur sem kjósa gæði BMW og rafmagnaða aksturseiginleika í hæfilega stórum og liprum borgarjeppa.

Hinn nýi rafknúni iX1 hefur þegar fengið afar jákvæðar umfjallanir …
Hinn nýi rafknúni iX1 hefur þegar fengið afar jákvæðar umfjallanir hjá blaðamönnum TopGear og AutoExpress í Bretlandi.
mbl.is