Símon Orri til Öskju

Símon Orri Sævarsson sölustjóri smart og Mercedes Benz sendibíla hjá …
Símon Orri Sævarsson sölustjóri smart og Mercedes Benz sendibíla hjá bílaumboðinu Öskju. Ljósmynd/Aðsend

Símon Orri Sævarsson er nýr sölustjóri hjá Öskju. Hann mun vera sölustjóri smart og Mercedes Benz sendibíla. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Öskju.

Símon starfaði hjá Heklu frá árinu 2013 þar til nú. Hjá Heklu starfaði hann sem vöru- og verkefnastjóri á sölusviði og þar á undan var hann viðskiptastjóri fyrirtækjasölu.

Símon er með meistarapróf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur verið viðloðandi í bílasölu frá barnsaldri.

Askja og bílaframleiðandinn smart hafa verið í samstarfi síðan árið 2021 en smart framleiðir rafknúna bíla og er nýjasta viðbótin í vöruframboð Öskju.

mbl.is