Rafmagnaðir sumardagar Kia

Ljósmynd/Aðsend

Rafmagnaðir sumardagar Kia standa yfir dagana 17-22 maí og á laugardaginn fer fram fjölskylduhátíð Kia á Krókhálsi 13.

Á fjölskylduhátíðinni stígur Salka Sól á svið, Skúbb ísgerðin gefur ís og Kia lukkuhjólið verður á staðnum með fjölda glæsilegra vinninga. Einnig verður skemmtilegur myndaleikur í gangi þar sem einn heppinn vinningshafi getur unnið afnot af glæsilegum og rafmögnuðum Kia EV6 í  allt sumar ásamt hraðhleðslulykli frá N1, að því er segir í tilkynningu. 

Á rafmögnuðum sumardögum 17 – 22 maí fylgir veglegur kaupauki að verðmæti allt að 250.000 kr. með öllum seldum raf- og tengiltvinn bílum frá Kia, ásamt hraðhleðslulykli frá N1 fyrir rafmögnuð ferðalög sumarsins.

mbl.is