Áhugamenn um ofursportbíla ættu að gleðjast við þau tíðindi að Bílabúð Benna frumsýnir á laugardaginn nýjustu kynslóð Porsche 911 GT3 RS.
Í tilkynningu kemur fram að þessi aflmikla og fagra bifreið var frumsýnd á erlendri grundu fyrir u.þ.b. ári síðan og byggir á arfleifð fyrri kynslóða. Nýja kynslóðin er þó aflmeiri, með minni loftmótstöðu og betri aksturseiginleika.
Vindskeiðar hafa verið stækkaðar og ýmis léttefni notuð í meira mæli í hönnun bílsins svo að hann vegur ekki nema 1.450 kg.
Bifreiðin er knúin áfram af 4 lítra 6 strokka boxer-vél sem nær allt að 9.000 snúningum á mínútu og framleiðir 525 hestöfl og 464 Nm hámarkstog. Lofar Porsche að þjóta megi úr kyrrstöðu í 100 km/klst á 3,2 sekúndum.
Sýningin á nýja ofursportbílnum fer fram hjá Porsche í Krókhálsi 9 frá 12 til 16 á laugardag en þar verður einnig hægt að berja augum eldri kynslóðir GT3 ásamt afburðabílum í einkaeigu. Nýr Macan 4 og Macan Turbo, sem frumsýndir voru fyrir skemmstu, verða einnig á staðnum.