Kia EV3 hlaut aðalverðlaun World Car Awards

Í rösklega tveggja áratuga sögu World Car Awards hefur KIA …
Í rösklega tveggja áratuga sögu World Car Awards hefur KIA nú hlotið aðalverðlaunin sex sinnum. Ljósmynd/Kia

Sportjeppinn Kia EV3 hefur hlotið titilinn bíll ársins 2025 í árlegri keppni World Car Awards. Valið var í höndum alþjóðlegrar dómnefndar nærri 100 bílablaðamanna og hlaut Kia EV3 780 stig, og hafði nokkurt forskot á Hyundai Inster og BMW X3 sem lentu í öðru og þriðja sæti með 764 stig annars vegar og 754 stig hins vegar.

Voru verðlaunin afhent við hátíðlega athöfn á bílasýningunni í New York sem núna stendur yfir.

Er þetta annað árið í röð sem KIA hlýtur aðalverðlaun World Car Awards en í fyrra var það Kia EV9 sem rúllaði upp keppinautunum. Árið 2020 hlaut Kia Telluride verðlaunin en allt talið hefur Kia orðið hlutskarpast í vali World Car Awards sex sinnum í 21 ára sögu keppninnar.

Athygli vekur að EV3 lenti toppslagnum í valinu á rafmagnsbíl ársins og best hannaða bíl ársins en laut þar í lægra haldi gagnvart Hyundai Inster og ID. Buzz. Af öðrum verðlaunaflokkum má nefna að BYD Seagull var valinn borgarbíll ársins, Porsche 911 Carrera GTS sportbíll ársins, og Volvo EX90 lúxusbíll ársins.

mbl.is