Dacia Bigster mættur hjá BL

Dacia Bigster stendur undir nafni, og er bæði stór og …
Dacia Bigster stendur undir nafni, og er bæði stór og stæðilegur. Ljósmynd/BL

Fjórhjóladrifni jepplingurinn Dacia Bigster verður frumsýndur á laugardag hjá BL við Sævarhöfða, en í tilkynningu segir að Bigster sé „stærsti bíllinn í flóru rúmenska bílaframleiðandans“ og „hannaður með skörpum útlínum sem gefa til kynna gott rými fyrir fólk og farangur, og getu hans til þægilegra ferðalaga utan alfaraleiða“.

Bigster er fáanlegur í nokkrum mismunandi útbúnaðargerðum og mun kosta frá 6,6 til 7,2 milljónir króna. „Essential“- og „Extreme“-útgáfurnar eru með fjórhjóladrifi og 130 hestafla 1.199 cc bensínvél með „mildu tvinnkerfi“ og beinskiptingu, og eyða að jafnaði 6 l á hverja 100 km. „Journey“ fæst með framdrifi, sjálfskiptingu og 155 hestafla 1.793 cc bensínvél með tvinnkerfi og 4,6 l eyðslu á hundraðið, en „Extreme“ fæst líka með sömu vél.

Eins og nafnið gefur til kynna er Bigster verkleg bifreið og eru 21,9 cm undir lægsta punkt og pláss fyrir 667 lítra af farangri. Af staðalbúnaði má nefna 10“ margmiðlunar-snertiskjá, rafdrifna og upphitaða hliðarspegla, langboga á þaki, sjálfvirk aðalljós og hita bæði í framsætum og stýri.

Frumsýningin á laugardag stendur yfir frá klukkan 12 til 16.

Skarpar og stílhreinar línur einkenna farþegarýmið.
Skarpar og stílhreinar línur einkenna farþegarýmið. Ljósmynd/BL
mbl.is