Það vakti mikla athygli í síðustu viku þegar kínverski bílaframleiðandinn BYD svipti hulunni af nýrri rafhlöðutækni sem á að gera það mögulegt að bæta um 470 km drægni á tómar rafhlöður með aðeins fimm mínútna hleðslu. Segir fyrirtækið að fyrir hverja sekúndu sem bíllinn dregur til sín rafmagn bætist við um 2 km af drægni.
BYD kallar þessa tækni „Super e-Platform“ og verður hún fyrst fáanleg í Han L og Tang L sem eiga að koma á markað strax með vorinu, en sérfræðingar hafa bent á að með þessum örstutta hleðslutíma taki ekki mikið lengri tíma að bæta á rafhlöðuna en að fylla á bensíntank. Til samanburðar gildir það um aðra rafbíla á markaðinum að það þykir gott ef það má ná um 250 km drægni eftir 15 mínútna tengingu við hraðhleðslustöð af öflugustu gerð.
Til að nýta þessa miklu hraðhleðslugetu BYD þarf að nota sérhæfðar hleðslustöðvar og ætlar fyrirtækið að reisa 4.000 slíkar í Kína á komandi mánuðum og misserum, en ekkert hefur verið gefið upp um hvort og hvenær megi eiga von á sams konar hleðslustöðvum á öðrum mörkuðum.
Í umfjöllun Guardian um nýju tæknina var bent á að bílar með þessari gerð rafhlaðna yrðu dýrari en eldri kynslóðir rafbíla og þá kallaði tæknin á mjög sterka tengingu við rafdreifikerfið enda gríðarlegt magn raforku sem rafhlaðan dregur til sín, og má því búast við að það verði dýrara að hrað-fylla þessar rafhlöður en ef stungið væri í samband á venjulegri hleðslustöð.
Einnig er ekki hægt að segja til um það með vissu hvort svona hröð hleðsla mun hafa áhrif á endingartíma rafhlöðunnar en það hefur átt við um rafhlöður í rafbílum hingað til að ef þær eru ítrekað hlaðnar í hraðhleðslustöðvum þá dregur smám saman úr drægni bifreiðanna.
Um svipað leyti og BYD kynnti nýju hraðhleðslu-rafhlöðuna til sögunnar bárust þær fréttir frá Florida International University að þar hefði tekist að búa til liþín-brennisteinsrafhlöðu. Í samanburði við liþín-jónarafhlöður eiga rafhlöður vísindamannanna í Flórída að vera léttari, ódýrari og geyma meiri orku.
Það er ekki ný uppgötvun að gera rafhlöðu úr liþíni og brennisteini en hingað til hafa slíkar rafhlöður haft þann ókost að endast ekki nema í 50 hleðslur áður en þær verða ónothæfar. Sá vandi er leystur í nýju rafhlöðunni með því að bæta örlitlu magni af platínu við efnablönduna og hafa prófanir sýnt að eftir 500 hleðslur hefur geymslugeta rafhlöðunnar minnkað um aðeins 8%.
Þá er skammt síðan Hyundai upplýsti að þróun svokallaðrar fastefnisrafhlöðu (e. solid state battery) gangi ágætlega og hyggst fyrirtækið setja bíla með þannig rafhlöðum á markað ekki seinna en árið 2030, ögn seinna en til stóð. Þeir sem þekkja vel til tækninnar fullyrða að fastefnisrafhlöður muni valda kaflaskilum í rafbílaframleiðslu en þær eiga að vera miklu léttari og með langtum meiri orkuþéttni en rafhlöður gerðar úr fljótandi efnum.
Þróun fastefnisrafhlaðna er ekki leikur einn en tæknin er komin nokkuð vel á veg og herma fregnir að Mercedes-Benz hafi þegar gert prófanir með bíl með fastefnisrafhlöðu um borð. Á sá bíll að hafa hvorki meira né minna en 1.000 km drægni á einni hleðslu.
Nú er svo komið að fjöldi nýrra gerða rafbíla kemur á markað ár hvert og er erfitt að gera upp á milli þeirra sem framleiðendur eru með í pípunum.
Þó er óhætt að benda lesendum sérstaklega á nýtt merki, Afeela, sem er væntanlegt á götuna árið 2026. Er það samstarfsverkefni Honda og raftækjaframleiðandans Sony og verður gaman að sjá hvernig útkoman verður. Afeela 1 verður bara til sölu í Kaliforníu, til að byrja með, og mun kosta í kringum 90.000 til 100.000 dali.
Langi lesendur að skera sig úr fjöldanum, og eigi til sand af seðlum, er Cadillac Celestiq rafbíll sem ætti að taka til vandlegrar skoðunar. Um er að ræða handsmíðaða lúxuskerru og er verðmiðinn í samræmi við það, eða um og yfir 300.000 dalir – eða á svipuðu reiki og Rolls-Royce eða ítalskur sportbíll af kröftugustu gerð. Eiga fyrstu eintökin að koma á götuna á þessu ári.
Svo verður að nefna nýjustu kynslóð Dodge Charger sem verður fáanlegur bæði sem bensínbíll og rafbíll. Í svokallaðri „Scat Pack“-útgáfu er rafmagns Charger 670 hestöfl og með tæplega 390 km drægni og seinna verður hægt að fá enn kraftmeiri Banshee-útgáfu.