Volkswagen Golf Blue Motion svínliggur á vegi og þrátt fyrir hve lágur hann er rakst hann í reynsluakstri aldrei niður þó að rösklega væri farið yfir hraðahindranir.
Volkswagen Golf Blue Motion svínliggur á vegi og þrátt fyrir hve lágur hann er rakst hann í reynsluakstri aldrei niður þó að rösklega væri farið yfir hraðahindranir. — Morgunblaðið/RAX
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Láta hann snúast rösklega og fá með því fram mikið tog en um leið meiri eyðslu, eða sætta sig við minni snerpu, skipta örar og ná ótrúlegum eyðslutölum. Hvort tveggja er gott og fer bara eftir skapinu hverju sinni.

Það eru ekki margir bílar sem hafa verið framleiddir í yfir 25 milljón eintökum en það á við um Volkswagen Golf. Hann hefur verið í framleiðslu frá árinu 1974 og er nú af sjöttu kynslóð. Hver einasta kynslóð hans hefur verið í fyrsta eða öðru sæti í vali á bíl ársins í Evrópu (European Car of the Year), svo það er ekki nema von að talsvert sé í bílinn spunnið.

Eyðslugrennsta útgáfa hans var tekin til kostanna um helgina, þ.e. Volkswagen Golf Blue Motion. Sá bíll er einn aleyðslugrennsti bíll sem völ er á og uppgefin eyðsla hans er 3,8 lítrar í blönduðum akstri. Það virðist vera leikur einn að ná þeirri tölu því í sparakstri fyrr á þessu ári reyndist hann með 2,8 l. eyðslu. Aðeins Toyota Yaris náði lægri tölu, en þar er sýnu minni bíll á ferð.

Vitni um vandaða smíði

Volkswagen Golf er snotur bíll að utan og nokkuð látlaus. Hefur í raun lítið breyst frá fimmtu kynslóðinni sem fyrst kom á markað árið 2003. Allar línur eru mjúkar og hafa þær verið það á Golf allar götur frá því þriðja kynslóð hans leysti af hólmi kantaðar línur fyrstu tveggja kynslóðanna.

Innrétting bílsins fellur undir sömu skilgreiningu, þ.e. látlaus en með mikið notagildi, fögur en ekki framúrstefnuleg. Hún ber vitni um vandaða smíði sem ávallt hefur gert Golf að eigulegum bíl sem endist og hefur hátt endursöluverð. Bíllinn er ótrúlega rúmur að innan, með gott farangursrými og pláss fyrir hvern farþega kemur á óvart.

Til að draga úr eyðslu

Hvað Volkswagen Golf Blue Motion áhrærir hefur allt verið gert til að ná niður eldsneytiseyðslu og sést það strax utan á honum. Hann er talsvert lægri á vegi og með hinar ýmsu vindskeiðar sem lækka loftmótstöðu. Hann er á viðnámsminni dekkjum, er með Stop/Start-tækni og 5 gíra beinskiptur gírkassi er með lengra hlutfall á milli gíra.

Í mælaborði ráðleggur aksturstölvan ökumanni hvenær á að skipta upp í næsta gír til að aka sem sparneytnast. Allt er þetta gert til að ná tilætluðum árangri og það virkar. Enginn af litla bróður Golf, Polo er með lægri uppgefna eyslu en þessi bíll, enda er Polo ekki framleiddur í Blue Motion-útfærslu.

Lægri og með sportfjöðrun

Aksturseiginleikar Golf eru algerlega til fyrirmyndar og gefa bíl ársins í ár VW Passat lítið eftir. Reyndar er það svo að eiginleikar Golf Blue Motion-bílsins eru líklega enn betri en hefðbundins Golfs þar sem hann er lægri og er með sportfjöðrun. Hann svínliggur á vegi og þrátt fyrir hve lágur hann er rakst hann aldrei niður þó að rösklega væri farið yfir hraðahindranir. Dísilvélin, 1,6 lítra er ágætlega snörp nema í fyrsta gírnum, sem að áliti greinarhöfundar er alltof langur sem lýsir sér í kraftleysi.

Þegar komið er í annan og þriðja gír og vélin látin snúast aðeins kemur gott tog vélarinnar í ljós og þá má hraða bílnum snögglega. Ef aka á þó eins og til er ætlast við smíði bílsins er þó skipt upp örar og ávallt haldið lágum snúningi sem þessi togmikla dísilvél þolir og þá eyðir bíllinn ótrúlega litlu. Það væri t.d. hæglega hægt að komast til Akureyrar á þessum bíl á 13-14 lítrum af dísilolíu og hringveginn á innan við 50 lítrum og þá er tankfyllin ekki búin.

Hagkvæmni nýrra dísilsvéla

Magnað er til þess að vita að bílar með nýjustu og hagkvæmustu dísilvélum séu jafnokar í eyðslu dýrari bílum sem notast við Hybrid-tækni (tvinnbílar). Það þýðir aðeins eitt, ennþá ódýrara að aka ódýrt!

Ef finna á einhvern ókost við að aka þessum hagkvæma bíl er það hversu hátt hann er gíraður. En þá er um tvennt að velja. Láta hann snúast rösklega og fá með því fram mikið tog en í leið meiri eyðslu, eða sætta sig við minni snerpu, skipta örar og ná ótrúlegum eyðslutölum. Hvoru tveggja er gott og fer bara eftir skapinu hverju sinni.

Nú sem áður er Golf mjög eigulegur bíll, einkar vel smíðaður og með þessari útfærslu hans er hann að auki alger sparigrís og ekki dýr til kaups. Svo fær hann líka frítt í stæði, enda CO 2 mengun hans aðeins 99 g/km. Vegna lítillar mengunar fellur hann í afar lágan tollflokk og því er þessi bíll ódýrari en venjulegur Golf þrátt fyrir að í honum sé meiri staðalbúnaður.

finnurorri@gmail.com

Léttur og mengunin er í lágmarki, segir Marinó í Heklu

Bíll sem örugglega fellur í kramið

„Hagkvæmnin er stærsti kostur þessa bíls. Allt er gert svo hann eyði sem minnstu eldsneyti og að mengun frá honum verði í lágmarki. Bíllinn er með vindskeiðar sem draga úr loftmótstöðu og felgurnar eru úr léttmálmi. Allt er gert til að þyngja hann ekki um of. Þessi bíll fer í lægsta tollflokk þar sem útblásturinn er lítill, enda teljum við verð hagstætt eða um 3,4 milljónir kr,“ segir Marinó Björnsson, sölustjóri Heklu, um Golf Blue Motion.

„Ef bíllinn er tekinn úr gír drepur vélin á sér, það er að segja ef hún er orðin heit. Þetta er t.d. hægt að gera á gatnamótum þegar bíða þarf á rauðu ljósi. Vélin ræsist sjálfkrafa þegar bíllinn er settur í gír. Þannig sparast eldsneyti og minnkar magn í CO 2 útblæstri.“

Marinó býst við að bíllinn verði vinsæll hér á landi. „Já, ég geri fastlega ráð fyrir því, enda hefur Golfinn notið mikilla vinsælda á Íslandi í mörg ár. Bíllinn er aðeins til í einni útfærslu og ekki er gert ráð fyrir sömu möguleikum á aukahlutum og í hefðbundnum Golf, þá þyngist hann. Ég tel að Volkswagen hafi tekist vel til með framleiðslu á Golf Blue Motion. Þetta er bíll sem fellur örugglega vel í kramið hjá íslenskum kaupendum.“

karlesp@simnet.is