Rennilegur í Rauðhólunum. Í Touareg er tvinntæknin tekin á æðra stig. Volkswagen hefur líka náð að létta bílinn um 200 kg frá fyrri árgerð og vissulega munar um slíkt.
Rennilegur í Rauðhólunum. Í Touareg er tvinntæknin tekin á æðra stig. Volkswagen hefur líka náð að létta bílinn um 200 kg frá fyrri árgerð og vissulega munar um slíkt. — Morgunblaðið/RAX
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Til margra ára hefur Volkswagen treyst á sínar háþróuðu díselvélar til að gera Touareg-jeppann sparneytinn bíl.

Til margra ára hefur Volkswagen treyst á sínar háþróuðu díselvélar til að gera Touareg-jeppann sparneytinn bíl. Þeir dagar eru langt í frá liðnir en Volkswagen hefur bætt tvinntækni (hybrid) í vopnabúr sitt til þess að gera bensínútgáfu bílsins sparneytna líka. VW Touareg Hybrid er fyrsti tvinntæknibíll fyrirtækisins. Volkswagen ryður einnig nýjar brautir með því að bjóða sama bílinn með díselvél og bensínvél með tvinntækni. Touareg kom mjög mikið breyttur með 2011-árgerðinni, með alveg nýjan undirvagn og með tvinntækni í boði. Í 2012-árgerðinni er breytingin enn meira afgerandi.

Tvinnbílar eru orðnir algengir hjá bílaframleiðendum og þar hafa þýskir framleiðendur ekki endilega rutt brautina, en þegar kemur að þýskri verkfræði og framleiðslu stenst þeim enginn snúning. Í Touareg er tvinntæknin tekin á æðra stig. Volkswagen hefur líka náð að létta bílinn um 200 kg frá fyrri árgerð en það er einmitt sú þyngd sem hybrid-búnaðurinn vegur í þessum bíl. Hann er því jafnþungur forveranum, enda finnst alls ekki fyrir þunga nýja búnaðarins.

Ótrúlegt afl

Touareg-tvinnbíllinn er ekki á nokkurn hátt öðruvísi í útlit en aðrar útgáfur hans. Eingöngu hybrid-merki að framan og aftan sýna að þar fer tvinnbíll. Vélin í bílnum er 333 hestafla, þriggja lítra bensínvél sem einnig er að finna í Audi-bílum. Við þetta afl bætast 42 hestöfl rafhlaðanna og er hann því 375 hestöfl, öflugasta útgáfa Touareg og fyrir þeim finnst vel.

Svona útbúinn er Touareg geysilega kröftugur bíll og sérlega gaman er að nota öll þessi hestöfl, enda er hann ekki nema 6,5 sekúndur í hundraðið. Er semsagt í flokki með öflugri sportbílum. Fyrir vikið er bíllinn ekki eins sparneytinn og margur annar tvinnbíllinn. Enda má segja að notkun tvinntækni í þennan bíl sé hugsuð á allt annan hátt en með þá flesta. Afl rafhlaðanna bætist bara við geysiöfluga bensínvélina og tekur eyðsluna örlítið niður. Þarna eru tveir góðir kostir í einu.

Í reynsluakstri eingöngu innan borgarmarkanna var bíllinn með 14,2 lítra á hundraðið og telst það hvorki lítið fyrir tvinnbíl né heldur sérlega mikið fyrir þungan og stóran lúxusjeppa með 375 hesta orkubúr. Aflið fer í gegnum átta gíra sjálfskiptingu sem hefði mátt vinna vinnu sína betur á stundum. Fyrir gírskiptingum finnst stundum of mikið og oft er hún of lengi að finna heppilegan gír við inngjöf og fyrir vikið er örlítil bið eftir öllu aflinu. Það er eins og hún eigi erfitt með að taka ákvarðanir sem hentar síður spretthörðum fótum.

Hljóðlaus akstur

Volkswagen Touareg er algjör lúxusbíll með öllum hugsanlegum þægindum. Sætin eru frábær með fallegu leðri, þakið er glerþak með stórri sóllúgu og bíllinn er hlaðinn nýjustu tækni. Fjöðrunin er á loftpúðum og hækka má bílinn fyrir erfiðari aðstæður. Mjög vel hefur lukkast með fjöðrun bílsins því hún er með þeim allra ljúfustu. Leggja má mikið á bílinn en alltaf fer hún vel með farþega.

Það er ljúf tilfinning að leggja af stað hljóðlega á rafmagninu einu saman og á því má ná allt að 50 km hraða. Það er einnig nokkuð sérstakt að sleppa bensíngjöfinni og sjá vélina slökkva á sér oft og iðulega og svífa áfram einungis á rafhlöðunni og það jafnvel í drjúga stund. Hybrid-tæknin í þessum bíl er mjög þróuð og ekki eins í þeim flestum þar sem einungis drepst á vélinni þegar hann er stöðvaður, t.d. á ljósum. Ekki finnst að neinu ráði fyrir því þegar vélin fer í gang aftur en það gerist þegar stigið er vænna á bensíngjöfina en svo að rafmótorinn nái að svara þörfinni.

Bíllinn er svo vel hljóðeinangraður að horfa þarf á snúningshraðamælinn til að taka eftir því þegar hann drepur á vélinni og veghljóð er að auki með því minnsta sem gerist. Svona 2,3 tonna bíll þarf stórar bremsur og þær eru gríðarlega öflugar á þessum bíl og hann má stöðva á einkennilega stuttri vegalengd.

Glæsilegur að innan

Innrétting bílsins er sérkapítuli, en hún er sérstaklega glæsileg og fer langleiðina að Porsche Cayenne í íburði og flottheitum. Efnisval, frágangur og stíll er í hæsta gæðaflokki. En það eru ekki bara framsætisfarþegar sem líður vel í Touareg því aftursætin eru jafnþægileg og frammí og ekki þarf að hafa áhyggjur af miklum farangri þar sem skottrými er mikið og tvinnbúnaðurinn virðist ekkert stela miklu af því.

Sjö sæta útgáfa af þessum bíl er hreinlega ekki framleidd og er ástæðan líklega sú að hann er byggður á sömu grind og Porsche Cayenne sem heldur er ekki í boði sem slíkur. Fáir sakna þess, enda hversu oft er þörf fyrir þessi aukasæti?

Í öðrum gerðum Touareg en þessari hybrid-útfærslu má velja aukalega ýmsan aukabúnað en þessi bíll kemur eiginlega með öllu því sem best er í boði. Það skýrir að mestu út af hverju hann er talsvert dýrari, en verð Touareg byrjar í 12,3 milljónum, en fyrir það fæst samt mjög vel búinn bíll.

finnur.orri@gmail.com

Volkswagen Touareg Hybrid er bíll sem munar um

Þýður og sparneytinn

„Volkswagen Touareg Hybrid er afskaplega þýður og skemmtilegur í akstri, enda er loftpúðafjöðrun hluti af staðalbúnaði. Bensínvél og rafmagn vinna vel saman en samanlagt afl er alls 333 hestöfl. Þessi bíll er því sannarlega nokkuð sem munar um,“ segir Marinó Björnsson, sölustjóri hjá Heklu hf.

Hin nýja kynslóð Touareg var kynnt á bílasýningunni í París í október 2010, mánuði áður en bíllinn kom á almennan markað. Fyrsta eintakið af Hybrid kom hingað til lands nú um áramótin og hafa þeir sem kynnst hafa bílnum látið vel af, segir Marinó. „Ég reikna ekki með að við verðum með svona bíl á lager, utan sýningarbíla, en við getum þá alltaf sérpantað, þá eru bílarnir með þeim búnaði og í þeim lit sem viðskiptavinir óska eftir og koma hingað til lands eftir tíu til tólf vikur,“ segir Marinó sem kveðst finna fyrir miklum kröfum viðskiptavina um að fá sparneytna bíla –enda séu til staðar margvíslegir hagrænir hvatar sem stuðli að því að fólk velji umhverfisvæna bíla frekar en aðra.