Með Mercedes B class gjörbreytist útlit bílanna. Hann er afar rennilegur með flott nef og afgerandi línan á hliðum sem snarhækkar við afturhurðirnar gefur sterkt og fallegt svipmót.
Með Mercedes B class gjörbreytist útlit bílanna. Hann er afar rennilegur með flott nef og afgerandi línan á hliðum sem snarhækkar við afturhurðirnar gefur sterkt og fallegt svipmót. — Morgunblaðið/Sigurgeir S.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Sú breyting sem orðið hefur á B-class bíl Benz er ein sú mesta og besta sem orðið hefur á bíl á undanförnum árum.

Sú breyting sem orðið hefur á B-class bíl Benz er ein sú mesta og besta sem orðið hefur á bíl á undanförnum árum. Bíllinn hefur breyst úr því að geta vart talist tilheyra hinu eðla merki Mercedes Benz í bíl sem í engu gefur eftir stærri og dýrari bílum fyrirtækisins. Mikil þörf var á því forverinn dró verulega niður ímyndina en nú styður B-class við hana.

Mikið var reyndar undir hjá Benz að vel heppnaðist til við þennan bíl því grunnhönnun hans er einnig að finna í nýjum A-class bíl sem kynntur var í Genf um daginn og á einnig að vera í nýjum litlum fjölnotabíl (SUV), nýjum smáum coupe-bíl og nýjun cross-over-bíl. Mikið að gerast hjá Benz! Benz hefur aldrei áður kynnt bíl með eins marga breytta íhluti milli kynslóða og í þessum bíl.

Glæsileg innrétting

Mercedes Benz B-class hefur tekið gott stökk fram á við í útliti. Framleiðandinn hefur gert eins vel og hægt er að krefjast í flokki svona bíla sem kallaðir eru compact people carriers – sem í lauslegri þýðingu gæti þýtt fjölkylduvænn fjölnotabíll. Bíllinn er æði rennilegur með flott nef og afgerandi línan á hliðum hans sem snarhækkar við afturhurðirnar gefur honum sterkt svipmót. Það setur mikinn svip á bílinn að framan hve risastórt Benz-merkið er á grillinu.

Enn betra tekur við að innan og engu líkara en að komið sé inn í rándýran og stóran Benz, hönnunin er glæsileg og ríkuleg. Athygli vekur strax umgerðin á lofttúðunum í mælaborðinu, stórir krómaðir málmhlunkar sem gefa mikinn eðalkarakter. Mælaborðið er einstaklega fallegt og frágangur, efnisval og vinnubrögð í innréttingunni allri Benz til fyrirmyndar. Framsætin má stilla á alla vegu og meira að segja aftursætisbekkurinn er á brautum.

Ökumaður situr nú næstum 9 cm neðar en í fyrri kynslóð og því fær ökumaður ekki lengur þá tilfinningu að hann sé að aka rútu. Inn- og útstig er einkar þægilegt þar sem sætishæðin er hvorki þannig að sest sé niður í bílinn né upp í hann. Þetta er reyndar einkennandi fyrir alla bíla í þessum flokki. Aftursætin eru mjög góð og fótarými og höfuðrými yfrið. Erfitt er þó að skilgreina það nógu stórt fyrir þrjá fullorðna, til þess þarf stærri bíl. Skottrými er ágætt, eða 486 lítrar og stækkar í heila 1.545 l ef aftursætin eru lögð niður.

Nýjar og eyðslugrannar vélar

Vélarnar sem í boði eru í B-class eru allar nýjar, tvær dísilvélar og tvær bensínvélar, allar fjögurra strokka. Askja býður alla valkostina. Bíllinn sem prófaður var var með minni díselvélinni og sjálfskiptur. B-class má einnig fá beinskiptan. Stærri dísilvélin er 135 hestafla með túrbínu og togar heila 300 Nm. Minni dísilvélin er 109 hestöfl en bensínvélarnar 122 og 156 hestöfl. Með þessari minni dísilvél er bíllinn engu að síður frískur og skortir sjaldan afl.

Sjálfskiptingin er frábær og full ástæða til að mæla með henni við kaupendur. Bílablaðamönnum ber saman um að allar vélarnar séu vel heppnaðar, en þeir eru líka sammála því að mæla með dísilvélunum. Þær toga mjög vel en eru í leiðinni mjög eyðslugrannar og eru reyndar báðar gefnar upp fyrir 4,4 l. í blönduðum akstri á beinskiptum bíl. Reynsla ökumanns eftir drjúgan akstur í borginni eingöngu var rétt 5,9 lítrar á sjálfskiptum bíl.

Líklega er mesti munurinn á núverandi B-class og forveranum fólginn í undirvagninum sem settur verður í svo marga bíla Benz á næstunni. Þar hefur Benz tekist frábærlega til og hálfgerður munaður er að keyra bílinn með svo góða fjöðrun. Hvað það varðar er hann alger bylting frá forveranum, sem seint gat talist skemmtilegur.

Bíllinn er á McPherson-gormum á framöxli og nýjum fjögurra liða afturöxli. Með nákvæmri stýringunni er bíllinn eins og hugur manns og akstursins er notið í hvívetna. Með nýjum Benz B-class er komin fram ein magnaðasta kynslóðabreyting sem greinarritari hefur orðið vitni að og ástæða til að hvetja bílakaupendur til að kanna gripinn.

finnurorri@gmail.com

B-Class Mercedes-Benz er breyttur frá fyrri útgáfu

Mjúkur og fer vel með fólk

„Þessi útgáfa af B-Class Mercedes-Benz er gjörbreytt frá fyrri gerð sem kom á markaðinn árið 2005. Að sjá er heildarsvipur bílsins líkur fyrri gerð. Þó hafa verið gerðar ýmsar breytingar og þegar sest er undir stýri leynir sér ekki að eitthvað nýtt og framandlegt er á ferðinni,“ segir Sigurður Pálmar Sigfússon, sölustjóri Benz hjá Öskju. „Bæði vél, skipting og stýrisgangur þessa bíls eru með allt öðrum hætti en í fyrri bíl og sama má segja um fjöðrun. Fyrir vikið er þessi bíll afskaplega mjúkur á vegi og fer vel með bæði ökumann og farþega. Heldur samt alveg þeirri Benz-tilfinningu sem jafnan einkennir bíla þessarar tegundar enda finnur maður vel að hörðustu Benz-mennirnir sætta sig vel við hann þennan. Finnst þeir alls ekki vera að taka niður fyrir sig þó hér séu þeir komnir á ódýrari og minni bíl.“

Við sölu á B-Class bílnum leggur Askja mesta áherslu á díselbílana sem kosta rétt tæplega 4,5 millj. kr. „Við náðum góðum samningum við framleiðandann og getum því boðið bílana á hagstæðu verði,“ segir Sigurður Pálmar. Litlu munar þó, sé bíllinn tekinn með ýmsum aukabúnaði sem mörgum þykir sjálfsagður og þarfur. Þá má geta þess að bíllinn mengar lítið og því greiðir ökumaðurinn til dæmis ekkert fyrir annars gjaldskyld stæði í miðborg Reykjavíkur.

sbs@mbl.is