Húllaðu þig inn í sumarið!

Húlladúllan mætir í Borgarbókasafnið Sólheimum í dag og kennir háum …
Húlladúllan mætir í Borgarbókasafnið Sólheimum í dag og kennir háum og lágum að húlla sig inn í sumarið.

Húlladúllan á svæðið í Borgarbókasafninu Sólheimum í dag,  laugardaginn 26. maí milli kl. 12.00 og 14.00

Húlladúllan slær upp stuttri húllasýningu þar sem hún sýnir hversu fjölbreytt og skemmtilegt húllahoppið er fyrir alla fjölskyldur, háa og lága, og býður viðstöddum í húllafjör!

Húllafjörið er húllasmiðja fyrir alla. Þátttakendum er boðið að koma og prófa að húlla og Húlladúllan mun gefa góð ráð og kenna skemmtileg trix. Engrar kunnáttu er krafist til þess að vera með og þátttakendur læra á sínum hraða. Húllahopp hentar bæði börnum og fullorðnum og er fyrirtaksleið fyrir fjölskylduna að skemmta sér saman í sumar, hvar og hvenær sem er. 

Húlladúllan verður með húllahringi; hringi fyrir fullorðna og börn og nokkra risahringi. Einnig verður hún með kínverska snúningsdiska og blómaprik.

Samkvæmt tilkynningu frá Borgarbókasafninu í Sólheimum er enginn aðgangseyrir og allir velkomnir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert