Heyrnaskert barn - hvað tekur við?

Þegar barn greinist með mikla heyrnarskerðingu er foreldrum greint frá …
Þegar barn greinist með mikla heyrnarskerðingu er foreldrum greint frá niðurstöðunni og barninu venjulega vísað í ákveðnar grundvallarrannsóknir og heyrnartækjameðferð. mbl.is/thinkstockphotos

Það er foreldrum yfirleitt áfall að komast að því að barnið þeirra sé með einhvers konar skerðingu en sem betur fer eru ýmis ráð til sem greiða bæði börnum og foreldrum þess leiðina framundan. Þetta á einnig við um heyrnaskerðingu en Bryndís Guðmundsdóttir, heyrnarfræðingur og deildarstjóri barnastarfs hjá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands svarar því hér hvaða ferli aðstandendur barns með heyrnaskerðingu þurfi að ganga í gegnum þegar ljóst er að barnið er töluvert mikið heyrnaskert. Hvenær þurfi að huga að kuðungsígræðslu, hvort æskilegt sé fyrir foreldra utan af landi að flytja til Reykjavíkur þar sem þjónusta við heyrnaskerta sé betri en víðast á landsbyggðinni. Svar Bryndísar birtist fyrst á vefnum Doktor.is.

_______________________________
Þegar barn greinist með mikla heyrnarskerðingu er foreldrum greint frá niðurstöðunni og barninu venjulega vísað í ákveðnar grundvallarrannsóknir og heyrnartækjameðferð. Það fer svo eftir eðli málsins hvert framhaldið er. Oftast er heyrnarskerðingin þannig að venjuleg heyrnartæki eru kynnt fyrir barninu og foreldrum og meðferð hefst fljótlega eftir staðfestingu heyrnarskerðingarinnar.

Kuðungsígræðsla kemur ekki til greina fyrr en heyrnarskerðingin er orðin mjög alvarleg þ.e. skilgreind því næst sem heyrnarleysi. Þá er hún kynnt fyrir foreldrum og höfð milliganga um táknmálsnám ef það hefur ekki þá þegar hafist. Ígræðsla sem gerð er snemma á heyrnarlaust fæddum börnum þykir skila mun meiri árangri en sé hún gerð seinna. Því fyrr því betra. Yngst er aðgerð gerð á 10 mánaða börnum eins og staðan er nú.

Með aldrinum verður talmálið æ þyngra á metunum í samskiptum …
Með aldrinum verður talmálið æ þyngra á metunum í samskiptum í stað leikja og þá reynir á að allir muni að heyrnarskertir eiga erfitt með að fylgjast með töluðu máli í hóp. mbl.is/thinkstockphotos

Táknmálsnám annast Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra. Þar er boðið upp á námskeið fyrir foreldra barnanna og nánustu fjölskyldu og t.d. leikskólastarfsfólk sem hafa með barnið að gera. Námskeiðin greiðast af Samskiptamiðstöð hvar sem þau fara fram á landinu skv. upplýsingum frá umsjónarmanni námskeiðahaldsins á Samskiptamiðstöð. Varðandi flutning til Reykjavíkur eða ekki þarf að meta það í hverju og einu tilviki fyrir sig. Þurfi barnið kuðungsígræðslu er reynsla varðandi þjálfun og eftirmeðferð langmest á höfuðborgarsvæðinu. Þar er einnig mestur fjöldi táknmálstalandi fólks og nokkur hópur á Akureyri.

Ef barnið er ekki í þeirri stöðu að um kuðungsígræðslu eða táknmál sé að ræða heldur heyrnarskert með sín venjulegu heyrnartæki fer allt eftir því hvernig samfélag barnsins er tilbúið að mæta því. Ef sveitarfélagið (leikskólinn/skólinn) er tilbúið að mæta barninu með sérhæfðum stuðningi og eftirfylgd í gegnum allan leikskólann/grunnskólann þá getur skólagangan gengið vel. En það er líka alger forsenda að þörfum barnsins sé rétt og vel mætt. Félagslega hliðin er svo annað atriði. Með aldrinum verður talmálið æ þyngra á metunum í samskiptum í stað leikja og þá reynir á að allir muni að heyrnarskertir eiga erfitt með að fylgjast með töluðu máli í hóp.

Svar Bryndísar á vefnum doktor.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert