Hver er besta leiðin til að fá foreldra til að hlýða?

Ljósmynd/Thinkstockphotos

„Á nýafstöðnu ársþingi íslenskra barna var þessi spurning brotin til mergjar. Ljóst var af þeim reynslusögum sem sagðar voru að hlýðni foreldra er því miður mjög ábótavant hér á landi. Steinunn úr Grafarvoginum er til dæmis látin taka sjálf til í herberginu sínu, og það tvisvar á ári, og Palli litli á Ísafirði fær ekki nammi nema einu sinni í viku. Pabbi Andrésar á Eskifirði harðneitar að leysa fyrir hann heimaverkefnin og mamma Gunnu á Stokkseyri gefur henni bara tíu þúsund kall á mánuði í vasapening.“ 

Ofangreint má lesa í föstudagssvari Vísindavefsins en þá leyfir ritstjórn vefsins sér að fara á flug og leika sér án þess að festa sig í vísindalegum staðreyndum. Svarið er birt með góðfúslegu leyfi ritstjórnar um leið og bent er á að föstudagssvarinu ber ekki að taka sem heilögum sannleik. Hins vegar er gaman að hugsa til þess að slíkt þing yrði sett á laggirnar þar sem börnin myndu fá að ræða foreldravandann í þaula. Næg eru málþingin og ráðstefnurnar þar sem fullorðnir ræða börn og þeirra mál ofan í kjölinn. 

Ljósmynd/Thinkstockphotos

Ýmsar aðferðir árangursríkar

Í föstudagsvarinu segir að þarna sé svo sannarlega um foreldravandamál að ræða og full þörf á róttækri meðferð fyrir foreldrana. „Þeir foreldrar sem hér voru nefndir vildu því miður ekki tjá sig við starfsfólk Vísindavefsins um málið. Fram kom að ekki ríkti einhugur um hvaða aðferðir væru árangursríkastar og virtist talsverð fylgni milli aldurs og skoðana á þessu máli. Þannig töldu flestir tveggja ára þátttakendur að heppilegast væri að leggjast á gólfið, baða út öllum öngum og öskra af öllum lífs og sálar kröftum. 13 ára þátttakendur voru hins vegar hrifnari af í-fýlu-inni-í-herbergi-aðferðinni sem og því að telja viðkomandi foreldrum trú um að þeir væru ströngustu foreldrarnir í hverfinu og að allir hinir krakkarnir mættu gera miklu meira,“ segir á Vísindavefnum.”

„Á þinginu var rætt um möguleikann á sérstökum hlýðninámskeiðum fyrir foreldra. Meðal annars var samþykkt tillaga um að fara út í viðræður um samstarf um námskeiðahald við Hundaræktarfélagið. Einnig þótti líklegt að atvinnurekendur gætu haft áhuga á einhvers konar samstarfi, enda eiga börn og atvinnurekendur augljóslega sameiginlegra hagsmuna að gæta í þessum efnum. Til dæmis var talað um að hrinda af stað átaki með slagorðinu „Hlýðnir foreldrar, undirgefnir starfsmenn.“ 

Sagt er frá því að börn á Íslandi leiti nú að fyrirtækjum sem vilja styrkja gerð límmiðabókar fyrir foreldra. Hugmyndin sé sú að foreldrar séu verðlaunaðir með límmiðum fyrir góða hegðun og límmiðarnir verði svo færðir inn í sérstaka bók. Foreldrar geta svo keppt hver við annan um að hafa sem flesta límmiða, jafnvel væri hægt að halda Íslandsmeistaramót í límmiðasöfnun og einnig gætu fjölmennir vinnustaðir birt mánaðarlegt yfirlit yfir þá starfsmenn sem hefðu flesta límmiða. 

„Fulltrúar úr ungbarnahópi og smábarnahópi ársþingsins lýstu þó yfir efasemdum um þessa aðferð þar sem þeir sögðust ekki kunna að telja og sáu því fram á að lenda í vandræðum við að deila út límmiðunum. Þessir hópar voru hrifnari af refsingum fyrir óhlýðni en verðlaunum fyrir hlýðni og reiknuðu með að halda áfram að beita hefðbundnum aðferðum á borð við að æla framan í foreldra og pissa eða kúka á gólfið.“

Föstudagssvarið á Vísindavefnum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert