Íslendingar fjármögnuðu uppbyggingu skóla í Aleppó

Ljósmynd/Aðsend

Thawra-grunnskólinn í Aleppó í Sýrlandi var endurbyggður var fyrir fjármagn frá íslenskum styrktaraðilum. Kostnaður við endurbygginguna var um 12 milljónir króna og var hann fjármagnaður af SOS Barnaþorpunum á Íslandi með dyggum stuðningi einstaklinga hér á landi sem lögðu verkefninu lið með frjálsum framlögum.

Ljósmynd/Aðsend

500 börn hefja nám um þessar mundir

Skólinn er í hverfinu Alsukkari en þangað hafa barnafjölskyldur flutt aftur eftir langan tíma á flótta í því hörmungarástandi sem þar hefur verið. Yfir 500 börn eru nú að hefja nám í skólanum sem er öllum börnum opinn, burtséð frá uppruna þeirra, trú eða afstöðu foreldra í stríðinu. Talið er að 50% barna á aldrinum 5-18 ára í austurhluta Aleppó hafi ekki stundað skólagöngu vegna stríðsástandsins.

Svona leit skólabyggingin út fyrir endurbæturnar.
Svona leit skólabyggingin út fyrir endurbæturnar. Ljósmynd/Aðsend

Al Thawra-skólinn er einn af mörgum sem hafa verið notaðir sem fangelsi eða skýli og sumir eru hreinlega orðnir að rústum. Ástandið er orðið stöðugra á sumum svæðum í Sýrlandi og yfirvöld vilja byggja samfélagið upp á ný.

 Meðal einstaklinga á Íslandi sem studdu við verkefnið var ónefndur einstaklingur sem gaf eina milljón króna og framlag upp á hálfa milljón króna kom úr minningarsjóði Sigurðar Jónssonar sem lést árið 2015, aðeins 43 ára að aldri. Sigurði þótti afar vænt um börn og sérstaklega þau sem áttu erfitt uppdráttar og því vildu aðstandendur hans leggja þessu verkefni lið.

Heimild: SOS.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert