Fæðingin var erfiðari en hún hélt

Cardi B eignaðist sitt fyrsta barn í sumar.
Cardi B eignaðist sitt fyrsta barn í sumar. AFP

Rappkonan Cardi B eignaðist sitt fyrsta barn með eiginmanni sínum Offset í sumar. Cardi B lýsti fæðingunni í spjallþætti Jimmy Kimmel þar sem hún sagði að það hefði verið erfiðara en hún hefði haldið að koma dóttur sinni, Kulture, í heiminn. 

Cardi B lýsti því að hún hefði rifnað í fæðingunni. „Af hverju segir þér enginn frá þessum hlutum. Það sagði mér enginn að þeir ætluðu að sauma á mér píkuna,“ sagði stjarnan sem segir að fólk lýsi því ekki hversu sársaukafull fæðing er. Það nefni að þetta verði sárt en það segi ekki allan sannleikann. 

Miðað við lýsingar Cardi B líktist fæðingarstofan helst umferðarmiðstöð en með á fæðingarstofunni voru systir hennar, móðir hennar, faðir, tengdamóðir og meira segja fjölmiðlafulltrúi hennar. 



Cardi B og Offset.
Cardi B og Offset. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert