Svona lýsir Meghan óléttunni

Meghan er þreytt á sinni fyrstu meðgöngu.
Meghan er þreytt á sinni fyrstu meðgöngu. AFP

Meghan hertogaynja á von á sínu fyrsta barni í vor. Meghan sem er komin aðeins lengra en 12 vikur leið ágætlega á fyrsta þriðjungi meðgöngunnar en hún hefur aðeins tjáð sig um meðgönguna í heimsókn hennar og Harrys um Eyjaálfu. 

Samkvæmt Sky News ræddi Meghan óléttuna við Charlotte Waverley í Ástralíu. Waverley upplýsti að Meghan hefði líkt óléttunni við að vera með flugþreytu. Bendir þessi samlíking Meghan til þess að hún sé þreyttari nú en vanalega. 

Meghan bregst endilega ekki við þreytunni með svefni en hún gerir jóga þegar hún er þreytt. Sagði Meghan að hún hefði vaknað klukkan hálffimm á föstudaginn og gert jóga þar sem hún gat ekki sofnað. 

Emily Carroll sagði Hello frá því á miðvikudaginn að henni hefði liðið vel á meðgöngunni en hún keyrði sig þó áfram á adrenalíni. 

Það er byrjað að móta fyrir lítilli kúlu hjá Meghan.
Það er byrjað að móta fyrir lítilli kúlu hjá Meghan. AFP
Harry og Meghan.
Harry og Meghan. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert