Jón og Hafdís eiga von á barni

Jón Jónsson og Hafdís Björk á brúðkaupsdaginn sinn en þau …
Jón Jónsson og Hafdís Björk á brúðkaupsdaginn sinn en þau gengu í hjónaband 2017. mbl.is/Stella Andrea

Poppstjarna Íslands, Jón Jónsson, og eiginkona hans, Hafdís Björk Jónsdóttir tannlæknir, eiga von á barni. Fyrir eiga hjónin tvö börn. 

Jón sagði frá því á Instagram í gærkvöldi að hann hefði fengið geggjaða afmælisgjöf og birti mynd af Hafdísi með kúluna. Hjónin fögnuðu afmæli hans með því að fara út að borða. 

mbl.is óskar hjónunum til hamingju með óléttuna. 

Hafdís Jónsdóttir geislar.
Hafdís Jónsdóttir geislar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert