Börn Rod Stewart eru á öllum aldri

Rod Stewart skellti sér á ströndina ásamt sonum og núverandi …
Rod Stewart skellti sér á ströndina ásamt sonum og núverandi eiginkonu. skjáskot/Instagram

Fjölskyldur koma í öllum stærðum og gerðum eins og sést á fjölskyldu tónlistarmannsins Rod Stewart. Stewart, sem er 73 ára, stillti sér upp með sonum sínum og núverandi eiginkonu sinni, Penny Lancaster, á ströndinni á dögunum. Synir tónlistarmannsins eru á öllum aldri.  

Stewart var 66 ára þegar yngsti sonur hans kom í heiminn árið 2011 en samtals á hann átta börn með fimm konum. Á myndinni má sjá syni Stewart og Lancester þá Alastair og Aiden sem eru sjö og 13 ára. Á myndinni er einnig Liam sem er 24 ára en Sean er elsti sonur Stewarts og er 38 ára. 

Elsta barn Stewart er 55 ára en hann gaf það til ættleiðingar þegar hann var unglingur. Stewart sem er greinilega mikill fjölskyldumaður hafði samband við hana seinna þó hann væri í raun bara líffræðilegur faðir stúlkunnar. 

View this post on Instagram

Family time down in Malibu

A post shared by Penny Lancaster (@penny.lancaster) on Oct 29, 2018 at 8:30pm PDT



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert