Var skíthræddur í fæðingunni

Travis Scott og Kylie Jenner eiga saman níu mánaða gamla …
Travis Scott og Kylie Jenner eiga saman níu mánaða gamla dóttur. AFP

Rapparinn Travis Scott reyndi að lýsa fæðingu dóttur sinnar í spjallþætti Ellenar DeGeneres. Átti hann erfitt með að koma orðunum út úr sér og er hugmyndin um fylgjuna honum enn frumstæð. 

Segist hann hafa verið skíthræddur við fylgjuna, þurfti hann að draga andann djúpt áður en hann tjáði sig um hana. „Ég var skíthræddur við hana,“ sagði Scott.

Móðir Kylie Jenner, Kris Jenner, var einnig viðstödd fæðinguna og fór í gegnum hvert skref fyrir sig með Scott sem klippti naflastrenginn. „Hún hélt honum niðri, þetta var svo ógnvekjandi,“ sagði Scott. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert