Ævar afhenti Katrínu skilaboð úr Garðabænum

Ævar Þór fylgdist með Katrínu skoða loftbelgina.
Ævar Þór fylgdist með Katrínu skoða loftbelgina. Ljósmynd/Aðsend

Ævar Þór Benediktsson barnabókahöfundur með meiru gekk á fund forsætisráðherra á föstudaginn ásamt fulltrúum frá UNICEF á Íslandi. Afhenti Ævar Katrínu Jakobsdóttur skilaboð frá börnum í Flataskóla í Garðabæ í tilefni alþjóðlegs dags barna sem er á morgun. 

Börn í Flataskóla skrifuðu skilaboð til stjórnvalda á fallega skreytta loftbelgi sem Ævar afhenti Katrínu. Börnin vonast til að ríkisstjórnin muni hjálpa loftbelgjunum að berast til leiðtoga heimsins. Þau skilaboð eru meðal annars að: öll börn eiga að fá vernd gegn ofbeldi, öll börn eiga að ganga í skóla, öll börn eiga að fá hreint vatn og heimili, eiga vini og fjölskyldu og að stelpur og strákar eiga jafn mikinn rétt til að tjá sig.

Katrín tók vel í skilaboðin og sagði það vera mikinn heiður að fá þau afhent. „Þetta skiptir mjög miklu máli að fá að heyra hvað börnin hafa að segja,“ sagði Katrín. Hún sagði að á næsta ári væri ætlunin að halda sérstakt barnaþing, í fyrsta skiptið á Íslandi, þar sem börn hvaðanæva af landinu geta sett málefni á dagskrá. Hún sagði einnig að málefni barna væru eitt af forgangsmálum Íslands í Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna. „Það skiptir máli að passa upp á öll börn í heiminum,“ sagði Katrín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert