Grínleikkonan Amy Schumer á von á sínu fyrsta barni og er óléttan ekki búin að vera auðveld. Hún birti myndband af sér á Instagram vera að æla. Myndbandið sýnir raunsanna mynd af óléttri konu sem glímir við mikla ógleði. Eins og Schumer segir sjálf ættu þeir sem eru viðkvæmir að taka hljóðið af.
Var Schumer í bíl á leiðinni að halda uppistand þegar myndbandið var tekið. Leikkonan hefur þurft að fresta nokkrum uppistandssýningum að undaförnu vegna mikillar ógleði. Hún hefur meðal annars þurft að leggjast inn á spítala vegna ógleði.