Bætir samskiptin við stjúpbörnin?

Caitlyn Jenner.
Caitlyn Jenner.

Caitlyn Jenner, fyrrverandi stjúpa Kourtney Kardashian, hefur ekki átt sérlega góð samskipti við stjúpbörn sín eftir að hún fór í kynleiðréttingu og skildi við móður Kardashian og Jenner-barnanna. Nú virðist eitthvað vera að breytast því Kourtney og Jenner sáust saman um helgina í Calabasas í Kaliforníu. 

Daily Mail hefur myndir undir höndum máli þessu til stuðnings þar sem fyrrverandi stjúpa og stjúpdóttir sáust saman labba út úr kvikmyndahúsi með börn Kardashian sem eru fjögurra og átta ára. 

Það hefur verið stirt á milli þessara tveggja í meira en ár og líka á milli Jenner og hinna fyrrverandi stjúpbarna hennar. Það að Kourtney sé komin inn fyrir þröskuldinn hjá Jenner gæti kallað á frekari samskipti hinna í fjölskyldunni. Það er kannski heldur ekkert skrýtið að samskiptin hafi orðið nokkuð krumpuð því fyrst skildu Kris Jenner og Caitlyn Jenner (fædd sem Bruce Jenner) árið 2013 en tveimur árum síðar fór Jenner í kynleiðréttingu og er í dag þekktasta transkona heims. Þegar mörg börn og stjúpbörn eru í spilinu getur allt farið í hund og kött eins og virðist vera í þessari heimsfrægu fjölskyldu. 

Kourtney Kardashian ásamt dóttur sinni Penelope.
Kourtney Kardashian ásamt dóttur sinni Penelope. Ljósmynd/skjáskot Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert