Celine Dion hannar barnaföt

Celine Dion er svo miklu meira en bara söngdíva.
Celine Dion er svo miklu meira en bara söngdíva. mbl.is/AFP

Celine Dion er ekki bara söngkona þar sem hún bætti nýlega fatahönnunartitlinum við. Dion hannaði nýverið barnaföt með fatamerkinu nununu en lína hennar kallast Celinununu. Fatamerkið gerir ekki greinarmun á stelpu- og strákafötum. 

„Ég sagði teyminu mínu að ef það væri eitthvað fyrirtæki sem ég myndi vilja vinna barnalínu með væri það nununu,“ sagði Dion í viðtali við Refinery29 um línuna. Sjálf hafði hún keypt föt frá fyrirtækinu fyrir börn sín. 

Dion á þrjá syni, 17 ára dreng og átta ára tvíburasyni. Hún segir tvíburana nota fötin sem hún hannaði í samstarfi við merkið. 

Söngkonan hefur verið gagnrýnd fyrir línuna sem samanstendur meðal annars af barnafötum með myndum af krossum og hauskúpum. Dion segir það sé eðlilegt og bætir því við að hún hafi líka fengið mjög góð viðbrögð. Með línunni sé hún einfaldlega að bjóða upp á val. 

ljósmynd/nununu
ljósmynd/nununu
ljósmynd/nununu
ljósmynd/nununu
ljósmynd/nununu
ljósmynd/nununu
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert