Stjörnuparið Jennifer Lopez og Alex Rodriquez skreyttu jólatré á heimili sínu í Miami um síðustu helgi. Börn þeirra fjögur fengu að hjálpa til við að skreyta tréð en rautt er þemað hjá samsettu fjölskyldunni í ár.
Tréð var stórt en það kom ekki í veg fyrir að allir hjálpuðust að. Til þess að ná í efri greinarnar notuðu börnin stóran stiga. Tréð er reyndar það stórt að fyrrverandi hafnaboltakappinn þurfti tröppur til að ná upp.
Lopez á tíu ára gamla tvíbura með fyrrverandi eiginmanni sínum Marc Anthony. Rodriquez á sömuleiðist tvær dætur, tíu og fjórtán ára, með fyrrverandi eiginkonu sinni Cynthiu Scurtis.
View this post on InstagramHave a Holly Jolly Christmas...🎄♥️😍
A post shared by Jennifer Lopez (@jlo) on Dec 8, 2018 at 9:46am PST
View this post on InstagramThe best times are with these lil ones... 🙏🏼🌟 #ilovechristmastime #familia
A post shared by Jennifer Lopez (@jlo) on Dec 8, 2018 at 6:10am PST