Dóttir Ágústu Evu með dásamlega rödd

Ágústa Eva með dóttur sinni Rebekku sem syngur eins og …
Ágústa Eva með dóttur sinni Rebekku sem syngur eins og engill. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Söng- og leikkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir og handboltastjarnan Aron Pálmason eiga dásamlega dóttur, Rebekku, sem er farin að sýna hæfileika á sama sviði og móðir sín. 

Í nýlegri færslu á Instagram má sjá þær mæðgur syngja saman. Rebekka gefur Ágústu Evu  ekkert eftir á þessu sviði. Ágústa Eva hefur látið hafa eftir sér í viðtali að dóttirin sé mjög músíkölsk. Það kemur glögglega fram í þessu myndbandi. 

View this post on Instagram

Mæðgnamjúsik.. ♡

A post shared by Agusta Eva Official (@agustaeva) on Dec 16, 2018 at 6:40pm PST

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert