Georg og Karlotta með sama áhugamálið

Karlotta og Georg elska bæði að dansa.
Karlotta og Georg elska bæði að dansa. AFP

Hin fimm ára gamli Georg prins og þriggja ára gömul systir hans, Karlotta prinsessa, eru vel upp alin. Þau eru byrjuð að æfa ballett en People greinir því að Karlotta hafi verið í nokkra mánuði í einkatímum í ballett í dansskóla í Suður-Lundúnum. 

Karlotta ætlar sér greinilega ekki að missa af stóra bróður sínum sem æfir ballet í skólanum sem hann gengur í. Er ballett hluti af námsskrá Thomas's Battersea-skólans.

„Dóttir mín elskar að dansa,“ sagði Vilhjálmur í mars og í október greindi hann frá því að Georg væri ekki síður áhugasamur. „Georg er einnig að dansa. Hann elskar það.“

Vilhjálmur Bretaprins með Goerg og Karlottu.
Vilhjálmur Bretaprins með Goerg og Karlottu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert