Tvíburar Beyoncé nutu sín á Indlandi

Beyoncé birti þessa mynd af sér frá Indlandsferðinn á Instagram.
Beyoncé birti þessa mynd af sér frá Indlandsferðinn á Instagram. skjáskot/Instagram

Beyoncé birti myndir af 18 mánaða gömlum tvíburum sínum og Jay-Z á heimasíðu sinni  á dögunum. Voru myndirnar teknar þegar söngkonan ferðaðist með tvíburum sínum, móður og eiginmanni hennar til Indlands þar sem hún söng í brúðkaupi dóttur ríkasta manns Indlands. 

Ferðin var greinilega ekki bara vinna miðað við myndirnar og fengu þau Rumi og Sir meðal annars að busla í sjónum á strönd í Mumbai. 

Aðdáendur Beyoncé hafa verið duglegir að birta myndir af eldri systur þeirra, Blue Ivy, í svipuðum aðstæðum og bera saman við nýju myndirnar. Blue Ivy verður sjö ára í næsta mánuði og hefur fengið að busla í sjónum líkt og yngri systkini hennar og Beyoncé birt myndir af sér halda á henni á ferðalögum sínum rétt eins og hún hélt á Rumi í Indlandsferðinni. 

View this post on Instagram

i can’t handle all this cuteness i stg 😣💕 • #beyonce #blueivy #rumi

A post shared by B E Y 🍋 N C E (@whatsupbeyonce) on Dec 20, 2018 at 7:59pm PST



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert