Davíð Þór er fimm barna faðir

Davíð Þór Jónsson.
Davíð Þór Jónsson. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Sr. Davíð Þór Jónsson prestur er fimm barna faðir. Þrjú þeirra eru uppkomin en hann og kona hans, Þórunn Gréta Sigurðardóttir, eiga tvo börn saman. Ægi sem er fæddur í febrúar á þessu ári og Signýju sem fæddist 2016. Hann segir í viðtali sem Þórdís Lilja Gunnarsdóttir tók við hann fyrir Fréttablaðið að hann sé ekkert endilega hættur barneignum. 

„Þórunn fór eðlilega strax í fæðingarorlof en eftir á að hyggja hefði ég átt að gera það líka, enda í nógu að snúast með tveggja ára barn og hvítvoðung. Ég var því ekki nógu mikið til staðar og sagði við Þórunni að næst gerðum við þetta ekki svona. Hún horfi á mig: „Næst? Láttu þig dreyma!“,“ rifjar Davíð upp og hlær. „Við erum svo sem ekki að plana frekari barneignir en ég er ekki heldur að lýsa því yfir að við séum hætt,“ segir Davíð Þór í viðtali við Fréttablaðið. 

Þar kemur fram að Davíð Þór á fjögur dásamleg barnabörn og segir hann að barnastússið geri hann ungan á ný. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert