Segir farið að styttast í komu barnsins

Meghan tjáði sig um meðgönguna á jóladag.
Meghan tjáði sig um meðgönguna á jóladag. AFP

Harry Bretaprins og Meghan eiginkona hans eiga von á sínu fyrsta barni í vor eða svo tilkynnti breska konungsfjölskyldan í haust. Vor er nokkuð teygjanlegt hugtak en Meghan hefur verið dugleg að tjá sig um óléttuna að undanförnu við fólk sem hún hittir. 

Fyrir jól greindi hertogaynjan frá því á elliheimili að hún væri mjög ólétt þann daginn og á jóladag ræddi hún við konu að nafni Karen Anvil sem beið eftir því að fá að hitta kóngafólkið á leið sinni í kirkju. 

Anvil sagði í viðtali við E! að Meghan hafi sagt þau vera mjög spennt og það væri alveg að koma að þessu. 

Breska konungsfjölskyldan er ekki vön að tilkynna um settan dag. Það er nokkuð víst að í huga Meghan er alveg að koma að komu frumburðarins. 

Meghan hertogaynja.
Meghan hertogaynja. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert