Með öllum tíu börnunum á jólunum

Dóttir Eddie Murphy birti fjölskyldumynd á jóladag.
Dóttir Eddie Murphy birti fjölskyldumynd á jóladag. skjáskot/Instagram

Grínleikarinn Eddie Murphy eignaðist sitt tíunda barn í lok nóvember. Elsta dóttir leikarans, Bria Murphy, birti fjölskyldumynd á jóladag af fjölskyldu Murphy en öll börnin hans voru saman komin á myndinni. Það yngsta þriggja vikna í fanginu á móður sinni, Paige Butcher. 

Butcher og hinn 57 ára gamli leikari áttu saman hina tveggja ára gömlu Izzy áður en yngsti sonurinn kom í heiminn. Elsta barn Murphy er 29 ára gamalt en hann á nú samtals tíu börn með fimm konum. 

Með á myndinni var móðir grínleikarans og tengdamóðir hans. 

View this post on Instagram

Merry Christmas!!! 🎄

A post shared by Bria (@bria_murphy) on Dec 25, 2018 at 9:48am PST

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert