Eignaðist fimmta barnið með fimmtu konunni

Rapparinn Future varð faðir í fimmta sinn á dögunum.
Rapparinn Future varð faðir í fimmta sinn á dögunum. skjáskot/Instagram

Rapparinn Future varð faðir í fimmta sinn á dögunum þegar fyrirsætan og framkvæmdastjórinn Joie Chavis eignaðist drenginn Hendrix. Fyrir átti hann fjögur önnur börn með fjórum öðrum konum. 

Hinn 35 ára gamli rappari á meðal annars fjögurra ára gamalt barn með söngkonunni Ciöru. Voru þau trúlofuð en söngkonan sleit trúlofuninni nokkrum mánuðum eftir að sonur þeirra kom í heiminn. Bæði Ciara og önnur barnsmóðir hans, Jessica Smith, hafa farið í mál við hann en Future er ekki beint talinn hafa staðið sig í stykkinu í föðurhlutverkinu. 

Future er vinsæll rappari í Bandaríkjunum en í fyrra átti hann að halda tónleika í Laugardalshöll. Tónleikunum var hins vegar aflýst. Sagði Ísleif­ur Þórhallsson hjá Senu þá í frétt mbl.is að margt hefði spilað inn í ákvörðun­ina en viður­kenn­di að miðasal­an hefði mátt ganga bet­ur.

View this post on Instagram

Hendrix 🦅

A post shared by Joy. (@joiechavis) on Dec 25, 2018 at 12:24pm PST

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert