Lét skilnaðinn líta fullkomlega út

Drew Barrymore lifir að margra mati drauminn, en hún er …
Drew Barrymore lifir að margra mati drauminn, en hún er dugleg að halda því fram að ekki er allt sem sýnist. Ljósmynd/skjáskot heimasíða Flower Beauty.

Leikkonan Drew Barrymore vekur athygli um þessar mundir fyrir skilaboð sín á samfélagsmiðlum um að ekki sé allt sem sýnist. Hún notar myllumerkið #TheWayItLooksToUs og fjallar opinskátt m.a. um samband sitt við fyrrverandi eiginmann og barnsföður, Will Kopelman. 

Í upphafi ársins 2012 tilkynntu þau fjölmiðlum um trúlofun sína og giftu sig seinna sama ár. Þau eiga tvær dætur saman, þær Olive Barrymore Kopelman sem er fædd árið 2012 og Frankie Barrymore Kopelman sem er fædd árið 2014. Það var síðan í apríl árið 2016 sem parið tilkynnti um fyrirhugaðan skilnað sem gekk í gegn í ágúst sama ár. 

Hún segir í færslunni að ekki sé allt sem sýnist. Þegar þessi mynd hafi verið tekin hafi allt litið út fyrir að vera fullkomið og að hún væri að fá sinn ævintýralega endi, þar sem hún var komin í hjónaband sem átti að vara að eilífu.

Hún fjallar um hvernig sambandið hafi verið hverrar mínútu virði, sér í lagi þar sem þau eignuðust tvær frábærar dætur saman. Að þau reyni eftir bestu getu að gera allt sem þau geta til að vera til staðar bæði tvö fyrir börnin. Hún segir að ekkert í lífinu sé auðvelt og vekur máls á því að draumar hennar hafi ræst í raun og veru. Þar sem hún er móðir í dag og það hlutverk hefur hún fyrir lífstíð. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert