Flottasta áramótaboðið?

Brooklyn, Cruz, Victoria Beckham, Harper og Romeo. Fyrir aftan fjölskylduna …
Brooklyn, Cruz, Victoria Beckham, Harper og Romeo. Fyrir aftan fjölskylduna stendur David Beckham. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Það eru ekki allir sem kunna að halda veislu eins og fyrrverandi knattspyrnumaðurinn David Beckham og eiginkona hans fatahönnuðurinn Vicktoria Beckham nú um áramótin að mati erlendra fjölmiðla

Hjónin hafa verið saman í tuttugu ár á þessu ári. Þau segja hjónabandið vinnu og það sé alls ekki einfalt að láta það ganga upp. 

Sonur þeirra Brooklyn sem er 19 ára skemmti sér konunglega með föður sínum. Harper 7 ára átti góðar stundir með mömmu sinni og Cruz þrettán ára og Romeo sextán ára voru áhugasamir um flugeldana ef marka má myndir.

Á meðal gesta voru leikkonan Liv Tyler og David Gardner. 

Unnusta Brooklyn, hin 21 árs Hana Cross, birti mynd af parinu þar sem hún tjáði ást sína á honum. 

View this post on Instagram

Girl power xxx ✨✨✨✨

A post shared by Victoria Beckham (@victoriabeckham) on Jan 1, 2019 at 6:19am PST

View this post on Instagram

HAPPY NEW YEAR❤️

A post shared by Hana (@hancross) on Jan 1, 2019 at 4:23am PST





.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert