8 ára og eldri munu elska þetta leikrit

Ævar Þór Benediktsson eða Ævar vísindamaður eins og hann er …
Ævar Þór Benediktsson eða Ævar vísindamaður eins og hann er kallaður. Ljósmynd/Gassi

Börnin elska bækurnar hans Ævars Þórs Benediktssonar eða Ævars vísindamanns eins og hann er kallaður. 25. janúar verður Þitt eigið leikrit  goðsaga frumsýnt í Kassanum. 

Söguheimurinn er norræna goðafræðin, full af hrikalegum hetjum og stórhættulegum skrímslum. Engar tvær sýningar verða eins, því áhorfendur ráða því hvað gerist og kjósa reglulega um framvinduna með fjarstýringum. 

Muntu sigra Miðgarðsorminn eða gleypir hinn hræðilegi Fenrisúlfur þig? Ætlarðu að gerast barnapía fyrir Loka eða líst þér betur á að verja sjálfa Valhöll fyrir jötnum og hrímþursum?Ævintýraleg og spennandi sýning, þar sem allt getur gerst! Sýningin er fyrir 8 ára og eldri. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert