Kylie segist ekki vera ólétt

Þær mæðgur, Stomi og Kylie Jenner.
Þær mæðgur, Stomi og Kylie Jenner.

Samfélagsmiðlastjarnan Kylie Jenner sagði á dögunum að hún væri að vinna í einhverju spennandi og að hún hlakkaði til að deila því með aðdáendum sínum. 

Einn af fylgjendum hennar á samfélagsmiðlinum Twitter spurði hvort hún væri ólétt af sínu öðru barni. Jenner svaraði athugasemdinni neitandi.

Kylie á dótturina Stormi með rapparanum Travis Scott. Stormi er tæplega eins árs en hún mun fagna sínum fyrsta afmælisdag 1. febrúar næstkomandi.

Það er þó enn óljóst hvað Kylie Jenner er að aðhafast, en hún mun að öllum líkindum tilkynna það á samfélagsmiðlum á næstunni. Jenner á snyrtivörufyrirtækið Kylie Cosmetics og því aldrei að vita hvort einhverjar nýjungar komi á markað á næstu misserum. 

View this post on Instagram

let’s get away 💚

A post shared by Kylie (@kyliejenner) on Jan 18, 2019 at 8:02am PST

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert