Einkaþjálfarinn Joe Wicks deildi nokkrum uppeldisráðum sem hann segir að Harry Bretaprins og Meghan Markle hertogaynjan af Sussex eigi ekki að fylgja. Wicks sagði í viðtali við útvarpsstöðina Hearts að Harry ætti ekki að fylgja neinum ráðum. „Stærsta ráðið sem ég get gefið er að taka ekki uppeldisráðum frá neinum, börnin okkar eru svo einstök þegar þau koma í heiminn,“ sagði Wicks.
Harry og Meghan eiga von á sínu fyrsta barni í vor. Wicks hélt þó áfram að gefa ráð eftir að hann sagði Harry að taka engum ráðum. „Eitt sem ég lærði er að vera þolinmóður og skilja að barnið er bara að læra á heiminn og þau gráta kannski. Þau vita ekkert hvað er í gangi, knúsaðu það bara og vertu þolinmóður. Leyfðu þeim að finna út hvar þau eru og hvað er að gerast, þau hafa kúrt í leginu svo lengi, er það ekki?“ sagði Wicks.
Wicks er þekktur einkaþjálfari í Bretlandi. Hann heldur úti Instagram-aðganginum TheBodyCoach þar sem hann deilir ráðum varðandi líkamsrækt og mataræði.
View this post on InstagramA post shared by Joe Wicks (@thebodycoach) on Jan 22, 2019 at 2:53am PST