40% 10. bekkinga fá ekki nægan svefn

mbl.is/​Thinkstockphotos

Svefnleysi ungmenna er mikið áhyggjuefni og er talið að 40% 10. bekkinga fái ekki fullan svefn samkvæmt úttekt sem gerð var. Orkudrykkjaneysla er orðin of mikil meðal ungmenna í grunn-og framhaldsskólum og hefur alvarleg áhrif á svefn þeirra þar sem þeir innihalda mikið koffín. 

Þetta kemur fram í þætti Helgu Arnardóttur, Lifum lengur, sem sýndur er í Sjónvarpi Símans Premium. 

Maciej Stanislav Kudla í 10. bekk Norðlingaskóla segist stundum leita í orkudrykki ef hann er þreyttur og Tinna Grönfeldt á 1. ári í menntaskóla segir orkudrykki fara illa í sig og valda kvíða en hún drekki þá af og til. Vinsælasti orkudrykkur meðal ungmenna inniheldur 105 mg af koffíni, ef ungmenni drekka 4 slíka á dag þá eru þau að innbyrða koffín sem jafngildir rúmlega fjórum kaffibollum. Það er meira en ráðlagður dagsskammtur fyrir fullorðna. Erla Björnsdóttir svefnsérfræðingur segir þetta alvarlega þróun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert